Mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland

Föstudaginn 16. september 2011, kl. 17:03:38 (0)


139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland.

723. mál
[17:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér kemur til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar frá hæstv. utanríkisráðherra um mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland.

Tillögutextinn hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að skipa nefnd tíu þingmanna til að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Ráðherra leiti tilnefningar tveggja þingmanna frá þingflokkum sérhvers eftirtalinna stjórnmálaflokka: Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokks, Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Framsóknarflokks, auk eins frá Hreyfingunni. Ráðherra skipi formann án tilnefningar.

Hlutverk nefndarinnar verði að fjalla um og gera tillögur um stefnu sem tryggi þjóðaröryggi Íslands á grundvelli herleysis. Við mótun stefnunnar taki nefndin mið af áhættumatsskýrslu fyrir Ísland frá árinu 2009, stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Nefndin skilgreini meginforsendur stefnunnar og setji fram tillögur um markmið og leiðir til að ná þeim.

Þingmannanefnd um mótun þjóðaröryggisstefnu skili tillögu til utanríkisráðherra svo fljótt sem verða má og eigi síðar en í júní 2012. Ráðherra leggi að því búnu tillögu að þjóðaröryggisstefnu Íslands fyrir Alþingi.“

Í athugasemdum með þessari tillögu kemur fram að með breyttu öryggisumhverfi hafi öryggisþarfir breyst frá því að íslensk stjórnvöld tóku upphaflega ákvörðun um þátttöku í vestrænu varnarsamstarfi. Í meginatriðum sé þar um að ræða sex þætti: i) Varnarsamstarfið við Bandaríkin er gjörbreytt frá því sem áður var; ii) öryggis- og varnarsamstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hefur verið í örri þróun undanfarin ár; iii) grannríkjasamningar um öryggissamstarf á friðartímum hafa breikkað grundvöll íslenskra öryggismála auk þess sem öryggis- og varnarmál eru nú viðfangsefni norrænnar samvinnu; iv) öryggissamstarf Íslands og Evrópusambandsins hefur farið vaxandi; v) öryggisumhverfi Íslands hefur gjörbreyst; vi) brýn þörf hefur skapast um verndun öryggishagsmuna á hafsvæðum kringum og norður af Íslandi í kjölfar hraðrar bráðnunar ísþekju Norðurhafa.

Meiri hluti nefndarinnar telur rétt að sú nefnd sem skipuð verður vinni tillögur að þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland á grundvelli her- og vopnleysis. Lögð er til orðalagsbreyting á 1. málsgrein þar sem ráðherra er falið að skipa nefndina samkvæmt tilnefningu þingflokka eins og þar er mælt fyrir um. Við mat á alþjóðlegum skuldbindingum Íslands komi til skoðunar og áréttingar 30 ára samfelld stefna íslenskra stjórnvalda um bann við staðsetningu kjarnavopna hér á landi, samþykktir Alþingis um stefnu Íslands í afvopnunarmálum og enn fremur frumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja (18. mál yfirstandandi þings) sem meiri hluti utanríkismálanefndar leggur til að verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Í ljósi þess hve umhverfi öryggishugtaksins hefur breyst mikið á undanförnum árum, eins og hér hefur verið nefnt, leggur meiri hluti utanríkismálanefndar áherslu á að öryggishugtakið verði skoðað á breiðum grunni. Þannig verði við starf nefndarinnar m.a. horft til atriða eins og umhverfisvár, svo sem vegna náttúruhamfara og áhrifa loftslagsbreytinga, heilsufarslegrar vár, svo sem vegna farsótta, öryggis mengunarvarna, fæðuöryggis, siglingaöryggis, netöryggis, fjarskiptaöryggis, þeirrar vár sem stafar af alþjóðlegri glæpastarfsemi o.s.frv.

Meiri hlutinn leggur til að þessi tillaga verði samþykkt með breytingu sem gerð er grein fyrir hér að framan og lögð er til í sérstöku þingskjali, en hún fjallar sem sagt um orðalagsbreytingu á tillögutextanum sjálfum en er ekki nein efnisbreyting.

Helgi Hjörvar var fjarverandi við afgreiðslu þessa máls. Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Valgerður Bjarnadóttir.