Húsnæðismál

Föstudaginn 16. september 2011, kl. 21:31:24 (0)


139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

húsnæðismál.

100. mál
[21:31]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Skáldið kvað: Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, og hvert örstutt spor er auðnuspor ef það er í átt að því að afnema verðtryggingu á Íslandi. Þetta er spor í þá átt og ég fagna því mjög eindregið.