Virðisaukaskattur o.fl.

Föstudaginn 16. september 2011, kl. 21:55:02 (0)


139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

virðisaukaskattur o.fl.

898. mál
[21:55]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég tel að við séum að stíga mikið heilla- og framfaraskref. Ég held að þetta sé í samræmi við þá hefð sem hefur ríkt á Íslandi um jákvæðar nýjungar, að þeim sé að minnsta kosti um sinn gefin undanþága frá skattgreiðslum. Ég held að eftir nokkra áratugi verði litið á þetta sem prýðilega stund fyrir Alþingi og er stoltur af því að hafa átt þátt í uppsprettu þessa máls og þakka meðflutningsmönnum mínum í salnum á tveimur tillögum, tvö eða þrjú ár aftur í tímann, fyrir samfylgdina.