sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með formanni samgöngunefndar, Birni Val Gíslasyni, að í þessum nýja lagaramma er verið að efla rétt og stöðu íbúanna langt umfram það sem við höfum séð áður í sveitarstjórnarlögum. Ég minni líka á það sem ég rakti í ræðu minni áðan að sum sveitarfélög hafa á umliðnum árum verið að þróa þessa lýðræðisstefnu með ýmsum hætti, m.a. með íbúakosningum sem hafa verið framkvæmdar og settar í reglur og samþykktir sveitarfélaga. Það sem ég vakti athygli á og er afar mikilvægt er að það sé skýr rammi í kringum það hvernig slíkar kosningar og slíkur réttur er útfærður þannig að það sé enginn að velkjast í vafa um það í hvaða stöðu sveitarfélag eða íbúar eru þegar til kastanna kemur. Ég bendi á að í umsögn frá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá því núna 14. september sem send var til samgöngunefndar er vakin sérstök athygli á því hvað þetta atriði snertir að það sé mikilvægt að horfa til þess að undanskilja fjárhagslega þætti í slíkri kosningu.
Ég spyr hæstv. innanríkisráðherra hvort hann telji ekki að rétt sé að horfa til þess þar sem útsvar er til að mynda stærsti tekjustofn sveitarfélaganna með ákveðið svigrúm, af því að við búum ekki bara við eitt almennt útsvarsstig í landinu, að verið sé að binda hendur sveitarstjórna jafnvel til nokkurra ára eða alls kjörtímabilsins með ákvörðun úr slíkri íbúakosningu sem almennt yrði þannig opin að sveitarstjórnin hefði ekki stöðu eða vald til að geta ákvarðað þær tekjur sem menn vildu nota til þjónustu og reksturs í sveitarfélaginu.