Mannvirki

Miðvikudaginn 20. október 2010, kl. 17:13:44 (0)


139. löggjafarþing — 16. fundur,  20. okt. 2010.

mannvirki.

78. mál
[17:13]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um mannvirki. Vorið 2002 var ákveðið að ráðast í heildarendurskoðun skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997. Í þessu skyni voru skipaðar tvær nefndir sem skiluðu vorið 2006 tillögum sínum í formi tveggja frumvarpa, annars vegar frumvarps til skipulagslaga og hins vegar frumvarps til laga um mannvirki. Í nefnd um endurskoðun byggingarhlutans áttu sæti fulltrúar umhverfisráðuneytis, forsætisráðuneytis, Samtaka iðnaðarins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Brunamálastofnunar. Nefndin hafði samráð við fjölmarga aðila við gerð frumvarpsins, þar með talinn sérstakan ráðgjafarhóp sem skipaður var helstu hagsmunaaðilum á sviði mannvirkjamála.

Sumarið 2006 fór fram af hálfu umhverfisráðuneytisins víðtæk kynning á framangreindum frumvörpum og voru þau send 159 aðilum, þar á meðal öllum sveitarfélögum landsins. Jafnframt kynnti ráðuneytið frumvörpin í fjölmiðlum og á heimasíðu sinni og var almenningi gefinn kostur á að gera athugasemdir við efni þeirra. Farið var vandlega yfir þær tæplega 70 skriflegu athugasemdir sem ráðuneytinu bárust og voru gerðar breytingar á frumvörpunum, m.a. vegna þeirra. Frumvarpið var síðast lagt fram á 138. löggjafarþingi, náði ekki fram að ganga, en var lagt fram þá samhliða frumvarpi til skipulagslaga sem samþykkt var sem lög frá Alþingi þann 9. september sl. Er frumvarp þetta því annar þáttur í endurskoðun skipulags- og byggingarlaga.

Í frumvarpi til nýrra laga um mannvirki er lögð til ný skipan um stjórnsýslu mannvirkjamála en þó byggt á þeim grunni sem fyrir er. Lögð hefur verið á það áhersla að líta heildstætt á alla löggjöf þar sem fjallað er um öryggi og heilnæmi mannvirkja með það að markmiði að gera stjórnsýslu mannvirkjamála sem skilvirkasta, auka faglega yfirsýn í málaflokknum og tryggja samræmt byggingareftirlit um land allt. Lagt er til að sett verði á fót ný stofnun, Byggingarstofnun, sem hafi yfir að ráða faglegri hæfni til að hafa með höndum yfirstjórn byggingareftirlits í landinu með það að meginmarkmiði að auka öryggi mannvirkja og gæði þeirra. Gert er ráð fyrir að Byggingarstofnun taki til starfa við gildistöku laganna þann 1. janúar 2011 og frá sama tíma verði Brunamálastofnun lögð niður og verkefni hennar færð undir Byggingarstofnun og ábyrgð á framkvæmd byggingarmála færð frá Skipulagsstofnun til Byggingarstofnunar.

Þá er lagt til að aðgengismál verði í höndum Byggingarstofnunar. Enn fremur er lagt til að fyrir gildistöku laganna verði heimilt að skipa forstjóra Byggingarstofnunar sem skal vinna að undirbúningi gildistöku laganna í samráði við umhverfisráðherra.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að meginþungi byggingareftirlits í landinu verði áfram í höndum sveitarfélaganna en mannvirki á tilteknum svæðum verða þó háð byggingarleyfi og byggingareftirliti Byggingarstofnunar, þ.e. mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka og mannvirki á varnar- og öryggissvæðum eins og þau eru skilgreind í varnarmálalögum, nr. 34/2003, og lögum um ráðstafanir í kjölfar samningsins við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nr. 176/2006.

Gert er ráð fyrir þeirri breytingu að byggingarnefndir verði valkvæðar og að sveitarstjórnir komi ekki með beinum hætti að stjórnsýslu byggingarmála nema með setningu sérstakrar samþykktar á hverjum stað. Verði það hlutverk sveitarstjórna að ráða byggingarfulltrúa sem síðan muni sinna útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd byggingareftirlits.

Í eðli sínu eru byggingarmál tæknileg mál og þess vegna eðlilegt að framkvæmd þeirra sé í höndum aðila með sérfræðiþekkingu á því sviði. Landnotkun og fyrirkomulag byggðar verða hins vegar áfram í höndum sveitarstjórna og skipulagsnefnda á grundvelli nýrra skipulagslaga.

Mikilvægt er að mörk skipulags- og byggingarlaga séu skýr. Gert er ráð fyrir að í lögum um mannvirki verði ákvæði er varða tæknilega gerð mannvirkja, sérstaklega varðandi öryggi, heilnæmi og aðgengi. Ákvæði er varða staðsetningu og umhverfi mannvirkja tilheyra hins vegar nýjum skipulagslögum. Þá mun þurfa samþykki skipulagsnefndar fyrir útgáfu byggingarleyfis varðandi breytingu á mannvirkjum hvað varðar útlit og form nema um óverulega breytingu sé að ræða.

Gert er ráð fyrir að allt byggingareftirlit verði framkvæmt af faggiltum aðila í samræmi við ákvæði skoðunarhandbókar sem Byggingarstofnun útbýr. Þetta þýðir að annaðhvort er byggingareftirlit, þá aðallega yfirferð hönnunargagna og framkvæmd úttekta, framkvæmt af faggiltum skoðunarstofum eða byggingarfulltrúum sem þá þurfa að hafa fengið faggildingu til að annast slíkt eftirlit.

Sama gildir um það beina eftirlit sem Byggingarstofnun mun hafa með höndum. Henni verður bæði heimilt að fela það faggiltum skoðunarstofum og að annast það sjálf en þarf þá að afla sér faggildingar. Í frumvarpinu eru tiltekin þau hæfnisskilyrði sem aðilar þurfa að uppfylla til að geta öðlast faggildingu og er gert ráð fyrir að þau séu misströng eftir umfangi viðkomandi mannvirkjagerðar.

Í frumvarpinu er lagt til að fleiri mannvirki en áður verði háð byggingarleyfi. Hér er um að ræða virkjanir og mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka. Áfram er gert ráð fyrir að tiltekin mannvirki falli utan gildissviðs laganna, svo sem fráveitumannvirki, dreifi- og flutningskerfi hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, varnargarðar og samgöngumannvirki. Þessi mannvirki og eftirlit með þeim falla undir aðra löggjöf, svo sem vegalög og siglingalög, og því eru þau undanþegin ákvæðum frumvarpsins.

Í frumvarpinu er lögð á það áhersla að skýra hlutverk og ábyrgð eiganda mannvirkis, hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara betur en gert er í núgildandi lögum. Tekið er fram að hin endanlega ábyrgð sé eigandans en hann ráði til sín fagaðila sem sjái um afmarkaða þætti mannvirkjagerðarinnar og beri ábyrgð gagnvart eiganda. Þeir sjái um innra eftirlit eigandans og beiti gæðastjórnunarkerfum við undirbúning og stjórnun framkvæmda.

Í frumvarpinu er leitast við að tryggja öguð vinnubrögð þeirra sem að mannvirkjagerð koma með því að gera kröfu um að þeir hafi gæðastjórnunarkerfi varðandi þá þætti rekstrar þeirra sem snýr að lögum og reglum um mannvirkjagerð. Á þetta bæði við um hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara. Vonast er til að þessi ákvæði leiði til bættra vinnubragða við mannvirkjagerð og þar með til hagsbóta fyrir neytendur.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Byggingarstofnun rannsaki sérstaklega tjón á mannvirkjum sem valda slysum eða skapa alvarlega hættu eða er til þess fallið að skapa hættu, svo sem af völdum veðurs, jarðskjálfta, flóða eða annarrar náttúruvár, eða ef mannvirki t.d. hrynja eða skemmast illa af óþekktum ástæðum. Tilgangur þess er að finna orsakir slíkra tjóna og læra af þeim mistökum sem kunna að hafa átt sér stað við hönnun eða gerð mannvirkis. Einnig geta slíkar rannsóknir leitt í ljós að breyta þurfi reglum um hönnun og byggingu mannvirkja. Nokkuð hefur skort á að slíkar rannsóknir fari fram með skipulögðum og markvissum hætti hér á landi.

Þessu til viðbótar skal Byggingarstofnun, samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, árlega gefa út skýrslu um stöðu og þróun mannvirkjagerðar í landinu í því skyni að auka yfirsýn yfir þennan víðfeðma og flókna málaflokk.

Lagt er til að gjald með nýju heiti, byggingaröryggisgjald, muni fjármagna starfsemi Byggingarstofnunar og standa undir kostnaði við yfirumsjón byggingaröryggismála. Ekki er um nýtt gjald að ræða heldur hefur ákvæði um svokallað brunavarnagjald, sem innheimt hefur verið á grundvelli laga um brunavarnir, verið fært inn í frumvarp til laga um mannvirki.

Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfisnefndar en mæli jafnframt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000.

Í frumvarpinu eru í fyrsta lagi lagðar til breytingar sem nauðsynlegt er að gera á lögum um brunavarnir vegna breytinga sem lagðar eru til á löggjöf um byggingarmálefni í frumvarpinu um mannvirki. Auk þess eru lagðar til nokkrar breytingar sem æskilegt er talið að gerðar verði á lögum um brunavarnir í ljósi reynslu þeirra níu ára sem þau lög hafa verið í gildi. Í frumvarpi til laga um mannvirki eru, eins og ég lýsti hér áðan, lagðar til margháttaðar breytingar á stjórnsýslu byggingarmála. Er lagt til að hin nýja stofnun, Byggingarstofnun, taki við því hlutverki sem Brunamálastofnun hefur sinnt hér á grundvelli laga um brunavarnir. Í frumvarpinu sem ég mæli hér fyrir er gert ráð fyrir að öll ákvæði sem verið hafa í lögum um brunavarnir varðandi hlutverk Brunamálastofnunar færist undir lög um mannvirki og undir Byggingarstofnun. Enn fremur er lagt til að brunamálaráð verði lagt niður.

Í frumvarpi til laga um mannvirki er lagt til að Byggingarstofnun leiti í störfum sínum samráðs við hina ýmsu hagsmunaaðila, þar með talið við Samband íslenskra sveitarfélaga. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir að sérstakt fagráð starfi að baki stofnuninni heldur leiti stofnunin þeirrar ráðgjafar sem hún þarfnast hverju sinni eftir aðstæðum. Útvíkkun á hlutverki stofnunarinnar kallar á samráð við mun fleiri aðila en þá sem setið hafa hingað til í brunamálaráði. Eðlilegt er að stofnunin skipuleggi sjálf einhvers konar samráðsvettvang, mismunandi eftir málefnum og málaflokkum sem undir stofnunina heyra. Ekki er talin þörf á að binda slíkt samráð eða fyrirkomulag þess í lög umfram það sem gert er í frumvarpi til laga um mannvirki.

Auk þessa er lagt til að skólaráð Brunamálaskólans verði lagt niður í núverandi mynd en í stað þess verði skipað sérstakt fagráð sem hafi það hlutverk að vera Byggingarstofnun til ráðgjafar um fagleg málefni Brunamálaskólans. Gert er ráð fyrir að sömu aðilar tilnefni í fagráð Brunamálaskólans og skólaráð, þ.e. Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, auk Félags slökkviliðsstjóra. Þá er formaður skipaður af ráðherra án tilnefningar.

Gert er ráð fyrir að lög um brunavarnir haldi gildi sínu sem sjálfstæð lög og að mestu óbreytt fyrir utan þær breytingar á yfirstjórn málaflokksins sem hér eru raktar enda hafa þau í aðalatriðum reynst vel frá því að þau tóku gildi í ársbyrjun 2001.

Meðal annarra breytinga má nefna að lagt er til að björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum verði eitt af lögbundnum hlutverkum slökkviliðs. Í meira en áratug hafa langflest slökkvilið landsins sinnt þessu verkefni án lagaskyldu. Björgun fólks úr farartækjum, t.d. eftir umferðarslys, krefst sérhæfðs búnaðar og þjálfunar þeirra sem búnaðinn nota. Þegar beita þarf slíkum tækjum er nauðsynlegt að slökkvilið sé á staðnum vegna eldhættu við farartækið. Hefur því skapast sú hefð að slökkvilið sinni þessu verkefni og er kennsla í meðferð búnaðarins hluti af námsefni Brunamálaskólans. Búnaðurinn nýtist einnig við björgun fólks úr mannvirkjum, en ekki er þó átt við þá starfsemi björgunarsveita sem felst í rústabjörgun. Var ákveðið að höfðu samráði við dómsmála- og samgönguráðuneytin að lögbinda þetta hlutverk við slökkvilið landsins. Með því að gera verkefnið lögbundið er tryggt að þessi þjónusta sé fyrir hendi á öllu landinu og að hún uppfylli tilteknar lágmarkskröfur.

Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni þessara tveggja frumvarpa og legg til að frumvarpi til laga um brunavarnir verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfisnefndar til umfjöllunar.