Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki

Föstudaginn 17. desember 2010, kl. 21:48:26 (0)


139. löggjafarþing — 53. fundur,  17. des. 2010.

virðisaukaskattur.

208. mál
[21:48]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit kannski meira en hv. formaður efnahags- og skattanefndar vegna þess að ég var í hringiðunni í málinu sem hann var ekki. En ég ætla ekki að stæla meira við hv. þingmann.

Ég get því miður ekki varpað fram spurningu til hv. þingmanns en ég ætla að varpa umhugsunarefni fram til þingheims: Getur verið að það nýja Ísland sem flokkur hv. þingmanns kallar á sé að kalla eftir þessari sannsögli, þessu gagnsæi og þessum heiðarleika þegar verið er að ræða mál?