Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 51. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 138 — 51. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um störf á heilbrigðisstofnunum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað er áætlað að margir missi vinnuna á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni nái niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga? Svar óskast sundurliðað eftir kynjum.
Samhliða vinnu ráðuneytisins við gerð tillagna um samdrátt í rekstri heilbrigðsstofnana var reynt að leggja mat á fækkun starfsmanna, næðu tillögurnar fram að ganga. Niðurstöður má sjá í eftirfarandi töflum sem unnar voru í ráðuneytinu.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi. Á landsbyggðinni má ætla að starfsmönnum fækki um samtals 456 einstaklinga (312 stöðugildi), verði ekki breytingar á frumvarpinu í meðförum þingsins. Af þeim fjölda má gera ráð fyrir að 369 einstaklingar (253 stg.) séu konur.
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir því að styrkja starf heilsugæslunnar með auknum fjárveitingum, einkum til sjúkraflutninga, sálfélagslegrar þjónustu við börn og ungmenni og heimahjúkrunar. Auknum fjárveitingum fylgja störf og er reiknað með fjölgun starfa fyrir allt að 63 (50 stg.) einstaklinga.
Þannig gæti frumvarpið falið í sér fækkun starfsmanna um 393 einstaklinga (261 stg.) þegar tekið hefur verið tillit til þessa.
Skýringar á töflum.
Upplýsingar í töflum 1 og 2 eru unnar úr launakerfi ríkisins og lýsa stöðunni í maímánuði 2010, upplýsingar um fjölda atvinnulausra eru frá Vinnumálastofnun og lýsa ástandinu í ágústmánuði sl. Í töflu 2 er reynt að draga fram áhrif samdráttarins á starfsstéttir eftir stofnunum. Miðað er við starfaflokkunarkerfi Hagstofu Íslands, ÍSTARF, en samkvæmt þeirri flokkun er starfsgreinum skipað saman í flokka eftir skyldleika. Tveir flokkar eru brotnir meira niður en aðrir til að nálgast áhrif samdráttarins á störf hinna eiginlegu heilbrigðisstétta.
Upplýsingar um fjölda þeirra sem eru 65 ára og eldri eru dregnar fram í ljósi þess að fækkun starfsfólks sem hættir störfum vegna aldurs geta orðið til þess að milda áhrif fyrirséðra uppsagna.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 138 — 51. mál.
Svar

| Tafla 1 | Heildarfjöldi starfsmanna1 |
Hlutfall kvenna2 | Fjöldi stöðugilda í dagvinnu3 | Fækkun starfsmanna4 | Fækkun stöðugilda5 | Áætlaður fjöldi starfsmanna eftir samdrátt6 | Áætlaður fjöldi dagvinnustöðugilda eftir samdrátt7 | Fjöldi 65 ára og eldri8 | Fjöldi stg. 65 ára og eldri9 |
Atvinnuleysi upptökusvæðis10 | |
| Stofnun: | Fjöldi | Þar af konur | |||||||||
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | 364 | 84% | 254 | 78 | 54 | 286 | 200 | 30 | 22 | 220 | 62,3% |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | 379 | 80% | 247 | 63 | 41 | 316 | 206 | 18 | 11 | 614 | 47,1% |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | 296 | 87% | 212 | 78 | 56 | 218 | 156 | 13 | 9 | 1.283 | 49,0% |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | 159 | 86% | 119 | 30 | 22 | 129 | 97 | 4 | 3 | 92 | 62,0% |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | 469 | 81% | 295 | 26 | 16 | 443 | 279 | 21 | 12 | 327 | 59,3% |
| Heilbrigðisstofnun Þingeyinga | 159 | 81% | 103 | 67 | 43 | 92 | 60 | 8 | 5 | 103 | 56,3% |
| Heilbrigðisstofnunin Blönduósi | 70 | 80% | 50 | 11 | 8 | 59 | 42 | 7 | 4 | 38 | 36,8% |
| Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð | 96 | 76% | 56 | 17 | 10 | 79 | 46 | 6 | 3 | 33 | 51,5% |
| Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði | 46 | 78% | 29 | 5 | 3 | 41 | 25 | 6 | 5 | 21 | 61,9% |
| Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki | 145 | 90% | 105 | 43 | 31 | 102 | 74 | 4 | 3 | 54 | 51,9% |
| Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum | 102 | 88% | 69 | 29 | 19 | 73 | 49 | 8 | 6 | 53 | 64,2% |
| Heilsugæslustöðin Dalvík | 26 | 62% | 10 | 1 | 0 | 25 | 9 | 0 | 0 | 32 | 46,9% |
| Sjúkrahúsið á Akureyri | 605 | 85% | 446 | 9 | 6 | 596 | 440 | 35 | 21 | 678 | 50,9% |
| Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu | 595 | 83% | 455 | 15 | 11 | 580 | 444 | 33 | 25 | 11 9046 |
44,5% |
| Landspítali | 4.795 | 81% | 3.754 | 68 | 53 | 4.727 | 3.700 | 276 | 221 | ||
| St. Jósefsspítali, Sólvangur | 255 | 87% | 183 | 96 | 69 | 159 | 114 | 25 | 21 | ||
| Samtals/meðaltal: | 8.561 | 82% | 6.387 | 634 | 445 | 7.927 | 5.942 | 494 | 372 | ||
| 1. Fjöldi kennitalna á launaskrá | |||||||||||
| 2. Hlutfall kvenna af fjölda starfsmanna | |||||||||||
| 3. Dagvinnustöðugildi | |||||||||||
| 4. Reiknaður fjöldi | |||||||||||
| 5. Vegið meðaltal af hlutdeild starfsstéttar í heildarlaunagjöldum viðkomandi stofnunarinnar. | |||||||||||
| 6. 1–4 | |||||||||||
| 7. 3–5 | |||||||||||
| 8. Fjöldi þeirra sem eru fæddir 1945 og fyrr | |||||||||||
| 9. Dagvinnustöðugildi þeirra sem eru fæddir 1945 og fyrr | |||||||||||
| 10. Fjöldi á atvinnuleysisskrá | |||||||||||
| 11. Atvinnuleysi höfuðborgarsvæðisins | |||||||||||
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.