Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 213. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 238  —  213. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um íslenska friðargæslu.

Frá Arndísi Soffíu Sigurðardóttur.



     1.      Hversu margir íslenskir friðargæsluliðar starfa nú á erlendri grund?
     2.      Hvaða verkefnum sinnir íslenska friðargæslan um þessar mundir?
     3.      Hversu margir íslenskir friðargæsluliðar bera vopn við störf sín?
     4.      Telur ráðherra efni til að draga frekar úr fjárframlögum til íslenskrar friðargæslu miðað við núverandi efnahagsaðstæður?


Skriflegt svar óskast.