Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 152. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 366  —  152. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga, lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., og lögum nr. 24/2010, um greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar eftir 2. umræðu og hefur fengið á sinn fund Björn Þór Hermannsson frá félags- og tryggingamálaráðuneyti og Áslaugu Árnadóttur lögfræðing, sem einnig kom fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytis, Valgerði Rún Benediktsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Ástu S. Helgadóttur, umboðsmann skuldara og Söru Jasonardóttur og Pálma Rögnvaldsson frá umboðsmanni skuldara.
    Nefndin ræddi frumvarpið og stöðu greiðsluaðlögunar í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 274/2010 þar sem Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms Suðurlands um að kröfuréttur á hendur sjálfskuldarábyrgðarmönnum nyti verndar 72. gr. stjórnarskrárinnar og að þau réttindi yrðu ekki skert án bóta með afturvirkri löggjöf. Staðfesti Hæstiréttur að 3. mgr. 9. gr. laga nr. 32/2009, um ábyrgðarmenn, sbr. 12. gr. laganna, þar sem kveðið er á um með afturvirkum hæti að niðurfelling kröfu á hendur skuldara hafi sömu áhrif til niðurfellingar fyrir ábyrgðarmann, væri andstæð stjórnarskrá og yrði því ekki beitt um ábyrgð sjálfskuldarábyrgðarmanna á greiðslum samkvæmt skuldabréfi. Ábyrgðarmönnum bæri því að greiða umkrafða fjárhæð.
    Nefndin bendir á að dómur Hæstaréttar hefur ekki bein áhrif á greiðsluaðlögun einstaklinga samkvæmt lögum nr. 101/2010 sem tóku gildi 1. ágúst 2010. Dómurinn hefur fyrst og fremst áhrif á nauðasamninga til greiðsluaðlögunar sem gerðir voru fyrir gildistöku þeirra laga og þar sem er í nauðasamningi kveðið á um niðurfellingu krafna sem tryggðar eru með sjálfskuldarábyrgð. Samkvæmt upplýsingum á vef dómstólaráðs höfðu 31. júlí 2010 546 slíkir nauðasamningar til greiðsluaðlögunar verið samþykktir en ekki liggur fyrir hversu hátt hlutfall þeirra verður fyrir áhrifum af dómi Hæstaréttar.
    Eftir gildistöku laga nr. 101/2010 er ávallt reynt að ná fram samningi um greiðsluaðlögun og ekki kemur til nauðasamnings nema samningaleiðin sé reynd til þrautar. Ekkert er því til fyrirstöðu að í slíkum samningi sé samið við kröfuhafa hvernig fara skuli með ábyrgðir og leggur nefndin ríka áherslu á að umsjónarmenn um greiðsluaðlögun gæti að því að semja um slíkt við greiðsluaðlögunarumleitanir.
    Nefndin telur mikilvægt að meðferð kröfuhafa á sjálfskuldarábyrgðum og ábyrgðarmönnum sé með samræmdum hætti og verði ekki til þess að fjölga þeim sem lenda í greiðsluerfiðleikum. Því beinir nefndin því til þeirra ráðuneyta sem fara með framkvæmd laga er varða skuldavanda heimilanna að leita eftir samkomulagi við helstu aðila, svo sem banka, sparisjóði, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð, þar sem samið verði um samræmda meðferð sjálfskuldarábyrgða sem jafnframt tryggi að fleiri einstaklingar lendi ekki í greiðsluerfiðleikum. Nauðsynlegt er að tryggja virkni greiðsluaðlögunar og annarra skuldavandaúrræða sem og að kröfuhafar grípi ekki til aðgerða sem fjölgi þeim sem þurfa á slíkum úrræðum að halda.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir og Ásmundur Einar Daðason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 30. nóv. 2010.



Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,


form., frsm.


Ólafur Þór Gunnarsson.


Pétur H. Blöndal.



Jónína Rós Guðmundsdóttir.


Guðmundur Steingrímssson.


Unnur Brá Konráðsdóttir.



Lilja Rafney Magnúsdóttir