Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 515  —  1. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2011.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Nefndin hefur fjallað áfram um frumvarpið frá því að 2. umræða fór fram 7. desember sl. Breytingartillögur þær sem eru til umfjöllunar við 3. umræðu nema samtals 9.042,1 m.kr. til hækkunar á sundurliðun 2, þ.e. fjármálum ríkisaðila í A-hluta.
    Tekjur hækka um 6.094 m.kr. við 3. umræðu en þar vegur hlutdeild fjármálastofnana í sérstökum vaxtaniðurgreiðslum til heimila langmest eða 6 milljörðum kr.
    Tekjuafkoma ríkissjóðs í A-hluta verður 37,3 milljarðar kr. Heildartekjur eru áætlaðar 472,5 milljarðar kr. og heildargjöld 509,8 milljarðar kr.
    Gerð er ein breytingartillaga við 5. gr. um hækkun lánsfjárheimilda um 6 milljarða kr. vegna áforma um vegaframkvæmdir.

    Hér á eftir fylgja skýringar á breytingartillögum meiri hlutans.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum þeim sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 14. des. 2010.



Oddný G. Harðardóttir,


form., frsm.


Björn Valur Gíslason.


Árni Þór Sigurðsson.



Sigmundur Ernir Rúnarsson.


Þuríður Backman.


Ólína Þorvarðardóttir.