Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 200. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 567  —  200. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Frá meiri hluta efnahags- og skattanefndar (HHj, ÁI, MSch, LRM, SII).



     1.      2. gr. orðist svo:
                 Eftirfarandi breytingar verða á A-lið 68. gr. laganna:
                  a.      2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Þannig skal fjárhæð barnabóta og skerðingarmörk vegna tekna, sbr. 4. mgr., ákvarðast í hlutfalli við dvalartímann.
                  b.      3. mgr. fellur brott.
                  c.      Í stað orðanna „Til viðbótar barnabótum skv. 3. mgr. skal greiða“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: Greiða skal.
                  d.      Í stað „2%“ í 5. málsl. 4. mgr. kemur: 3%.
                  e.      Við 4. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Til viðbótar barnabótum samkvæmt þessari málsgrein skal greiða tekjutengdar barnabætur með öllum börnum yngri en sjö ára á tekjuárinu. Skulu þær árlega nema 61.191 kr. og skal skerðingarhlutfall þeirra vera 3% með hverju barni.
     2.      B- og c-liður 3. gr. falli brott.
     3.      Við 6. gr.
                  a.      Orðin „sbr. reglugerð nr. 555/2004“ í a-lið falli brott.
                  b.      C-liður (III.) orðist svo:
                      Við endurreikning á gengistryggðum húsnæðis- og bílalánum einstaklinga utan atvinnurekstrar í lán í íslenskum krónum, sbr. dóm Hæstaréttar frá 16. júní 2010 þar sem gengistryggðir bílasamningar voru dæmdir ólögmætir, skulu inneignarvextir skuldara sem ákvarðaðir eru af þessum sökum á árunum 2010 og 2011 ekki teljast til fjármagnstekna. Endurútreikningur afborgana og vaxta af þessum sökum skal ekki hafa áhrif á áður ákvarðaðar vaxtabætur eða barnabætur hvort sem er til hækkunar eða lækkunar, nema skattaðili fari fram á endurákvörðun þeirra og skal ríkisskattstjóri þá taka til greina beiðni skattaðila um breytingu á ákvörðun um skattstofn eða skattálagningu, þó lengst sex tekjuár aftur í tímann, talið frá því ári þegar beiðni kemur fram, enda liggi verulegir hagsmunir að baki slíkri beiðni. Beiðni skal byggjast á nýjum gögnum og upplýsingum sem ekki var unnt að koma að innan tímamarka 99. gr. Þá skulu skilyrði 96. gr. uppfyllt ef um hækkun er að ræða. Víkja má frá þessum tímamörkum ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Heimilt er skattaðila að kæra breytingar til yfirskattanefndar, sbr. lög nr. 30/1992.
                      Endurútreikningur afborgana og vaxta, sbr. 1. mgr., hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur endurútreikningurinn ekki áhrif á greiðslu húsaleigubóta skv. 9. gr. laga um húsaleigubætur, greiðslu barnabóta eða vaxtabóta skv. 68. gr., atvinnuleysisbóta skv. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. 22. gr. laga nr. 22/2006, og námslán Lánasjóðs íslenskra námsmanna, sbr. 1. gr. laga nr. 21/1992.
                  c.      Við bætist tveir nýir stafliðir sem orðist svo:
                      d.      (IV.)
                                 Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 3. mgr. B-liðar 68. gr. skal viðmiðunarhlutfall hámarksvaxtagjalda af skuldum, sem þar er tilgreint, vera 7% við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011 og 2012 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010 og 2011.
                                 Þrátt fyrir ákvæði 3. málsl. 3. mgr. B-liðar 68. gr. skulu hámarksfjárhæðir vaxtagjalda til útreiknings vaxtabóta, sem þar eru tilgreindar, vera 800.000 kr., 1.000.000 kr. og 1.200.000 kr. við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011 og 2012 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010 og 2011.
                                 Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 4. mgr. B-liðar 68. gr. skal viðmiðunarhlutfall, sem þar er tilgreint, vera 8% við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011 og 2012 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010 og 2011.
                                 Þrátt fyrir ákvæði 7. málsl. 4. mgr. B-liðar 68. gr. skulu skerðingarfjárhæðir eigna að frádregnum skuldum, sem þar eru tilgreindar, vera 4.000.000 kr. og 6.500.000 kr. við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011 og 2012 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010 og 2011.
                                 Þrátt fyrir ákvæði 11. og 13. málsl. 4. mgr. B-liðar 68. gr. skulu viðmiðunarfjárhæðir, sem þar eru tilgreindar, vera 400.000 kr., 500.000 kr., 600.000 kr. og 5.000 kr. við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011 og 2012 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010 og 2011.
                      e.      (V.)
                                 Við álagningu opinberra gjalda á árunum 2011 og 2012 skal ákvarða mönnum sérstaka vaxtaniðurgreiðslu með eftirfarandi hætti:
                                  1.      Sérstök vaxtaniðurgreiðsla skal vera 0,6% af skuldum vegna lána sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, þar með talin eru kaup á búseturétti samkvæmt lögum nr. 66/2003 og kaup á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt eldri lögum, eins og þær eru í árslok 2010 og 2011. Hjá þeim sem skattskyldir eru hluta úr ári vegna brottflutnings á tekjuárinu skal miða við skuldastöðu eins og hún var fyrir brottflutning.
                                  2.      Sérstök vaxtaniðurgreiðsla getur aldrei verið hærri en 200.000 kr. á ári fyrir hvern mann og 300.000 kr. á ári fyrir einstætt foreldri og hjón eða sambýlisfólk sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun, sbr. 3. mgr. 62. gr., í lok tekjuárs. Hámark sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu hjá þeim sem skattskyldir eru skv. 1. gr. hluta úr ári ákvarðast í hlutfalli við dvalartíma á árinu.
                                  3.      Sérstök vaxtaniðurgreiðsla skerðist hlutfallslega fari eignir skv. 72. gr., að frádregnum skuldum skv. 1. mgr. 75. gr., fram úr 10.000.000 kr. hjá einstaklingi og 15.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri og hjónum eða sambýlisfólki uns hún fellur niður við tvöfalda þá fjárhæð.
                                  4.      Sérstök vaxtaniðurgreiðsla að viðbættum vaxtabótum skv. B-lið 68. gr. má ekki vera hærri en vaxtagjöld ársins vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, þar með talin eru kaup á búseturétti samkvæmt lögum nr. 66/2003 og kaup á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt eldri lögum.
                                  5.      Sérstaka vaxtaniðurgreiðslu skal greiða með jöfnum hætti og í tvennu lagi hvort gjaldárið fyrir sig 2011 og 2012. Skal fyrri greiðsla ársins fara fram 1. maí og hin síðari 1. ágúst að lokinni álagningu opinberra gjalda.
                                  6.      Um rétt til sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu gilda að öðru leyti ákvæði B-liðar 68. gr. um vaxtabætur eftir því sem við á.
                                  7.      Sérstök vaxtaniðurgreiðsla samkvæmt ákvæði þessu telst ekki til skattskyldra tekna.
     4.      Við 11. gr.
                  a.      Í stað fjárhæðarinnar „104,75 kr.“ í c-lið komi: 101,74 kr.
                  b.      Í stað „15%“ í d-lið komi: 10%.
     5.      Í stað „2. tölul.“ í c-lið 14. gr. komi: 2. mgr.
     6.      Á eftir 23. gr. komi ný grein sem orðist svo:
                 Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VI í lögunum:
                  a.      Í stað orðanna „1. janúar 2010 til og með 31. desember 2010“ kemur: 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011.
                  b.      Í stað orðanna „laga nr. 17/2008“ kemur: laga nr. 120/2009.
     7.      Við 25. gr.
                  a.      Í stað fjárhæðarinnar „1.278 millj. kr.“ í 1. efnismálsl. komi: 1.276,3 millj. kr.
                  b.      2. efnismálsl. falli brott.
     8.      26. gr. orðist svo:
                 Í stað ártalsins „2010“ í 14. og 15. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 2011.
     9.      Á eftir XV. kafla komi nýr kafli, XVI. kafli, Breyting á lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, með einni nýrri grein sem orðist svo:
                 Í stað fjárhæðanna „180.000 kr.“ og „153.500 kr.“ í 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: 184.140 kr., og: 157.030 kr.“
     10.      27. gr. orðist svo:
                 Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:
                  a.      1., 4.–5., 7.–9. og 23. gr. öðlast gildi 1. janúar 2011 og koma til framkvæmda við álagningu 2012 og á staðgreiðsluárinu 2011 eftir því sem við á.
                  b.      2. gr. öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda við ákvörðun barnabóta og álagningu gjalda á árinu 2011.
                  c.      3. gr. öðlast gildi 1. janúar 2011 og kemur til framkvæmda við ákvörðun vaxtabóta og álagningu gjalda á árinu 2012.
                  d.      6., 22. og 26. gr. öðlast þegar gildi.
                  e.      10. gr. öðlast gildi 1. janúar 2011 og tekur til skipta á dánarbúum þeirra sem andast þann dag eða síðar, búskipta þeirra sem hafa heimild til setu í óskiptu búi fari þau fram eftir gildistöku laganna og álagningar erfðafjárskatts á fyrirframgreiðslu arfs vegna erfðafjárskýrslna sem berast sýslumönnum eftir gildistöku laganna.
                  f.      11.–21., 24.–25. og 27.–28. gr. öðlast gildi 1. janúar 2011.