Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 457. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 747  —  457. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um áskrift að dagblöðum og héraðsfréttablöðum.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvað kaupa ráðuneytið og stofnanir þess mörg dagblöð og héraðsfréttablöð í áskrift, hvaða blöð og hve mörg eintök? Óskað er að fram komi hvaða stofnanir kaupa áskriftir og hve margar áskriftir hver stofnun kaupir, sundurliðað eftir blöðum og skipt eftir vefáskrift og pappírsáskrift.
     2.      Hve mikið greiða ráðuneytið og stofnanir þess samtals fyrir blaðaáskriftir, dagblöð og héraðsfréttablöð? Óskað er sundurgreiningar eftir blöðum og áskriftargerðum.


Skriflegt svar óskast.