Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 17. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 962  —  17. mál.




Nefndarálit



um til. til þál. um gerð samninga um gagnkvæma vernd fjárfestinga.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og henni bárust umsagnir frá iðnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Samtökum atvinnulífsins.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi feli utanríkisráðherra að hefja stefnumótun um gerð samninga við önnur ríki um gagnkvæma vernd fjárfestinga. Stefnt verði að því að fjölga gerð slíkra samninga til þess að efla traust og skapa hagfelld skilyrði fyrir beina erlenda fjárfestingu hér á landi sem og fjárfestingu íslenskra aðila erlendis. Gerð slíkra samninga stuðlar jafnframt að aukinni milliríkjaverslun og veitir fjárfestum aukna vernd. Sérstaklega verði að því stefnt að gera samninga af þessu tagi við þau ríki þar sem Íslendingar hafa mestu viðskiptahagsmunina.
    Í greinargerð með tillögunni segir m.a. að mjög brýnt sé að laða erlenda fjárfesta hingað til lands til þess að leggja fram fjármagn til atvinnuuppbyggingar, með lánsfé og beinni hlutafjárþátttöku. Þá segir að með hruni fjármálakerfisins hafi trúverðugleiki Íslands víða erlendis beðið hnekki og það hafi meðal annars stuðlað að því að erlendir fjárfestar halda að sér höndum og séu ekki viljugir til þess að fjárfesta hérlendis. Það er þekkt frá öðrum ríkjum sem vilja laða til sín erlenda fjárfestingu að þau gera það með því að skapa traust og trúverðugleika. Einn liður í því, samkvæmt greinargerðinni, gæti verið að gera samninga við önnur ríki um gagnkvæma vernd fjárfestinga.
    Nefndin tekur undir umsagnir sem henni bárust sem allar voru jákvæðar og telur brýnt að efla traust og skapa hagfelld skilyrði fyrir erlenda fjárfestingu hér á landi sem og fjárfestingar Íslendinga erlendis. Nefndin telur þó ljóst að gerð gagnkvæmra samninga um vernd fjárfestinga sé vandkvæðum bundin við núverandi aðstæður eins og bent er á í umsögn utanríkisráðuneytis. Í samningsfyrirmynd OECD við gerð fjárfestingarsamninga, sem íslensk stjórnvöld styðjast við, er kveðið á um að samningsaðilar tryggi að greiðslur sem tengjast fjárfestingum og ágóða skuli fást yfirfærðar. Með þeim takmörkunum á gjaldeyrisviðskiptum sem í gildi eru hér á landi eru möguleikar á því að framfylgja þessum ákvæðum fjárfestingarsamninga verulega skertir. Í því ljósi álítur nefndin að gerð samninga um gagnkvæma vernd fjárfestinga um þessar mundir sé verulegum takmörkunum háð, en telur engu að síður tímabært að hefja stefnumótun til framtíðar á þessu sviði svo hægt sé að leggja í slíka samningagerð þegar aðstæður breytast.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Björgvin G. Sigurðsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. mars 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Bjarni Benediktsson.



Helgi Hjörvar.


Ólöf Nordal.


Birgitta Jónsdóttir.



Álfheiður Ingadóttir.