Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 300. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 1139  —  300. mál.
Fyrirvari.




Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á l. nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum (sjúkdómatryggingar).

Frá efnahags- og skattanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármálaráðuneyti, Ingvar Rögnvaldsson og Elínu Ölmu Arthúrsdóttur frá ríkisskattstjóra, Guðjón Rúnarsson, Vigdísi Halldórsdóttur og Örn Gústafsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Guðmund Magnússon og Sigríði Hönnu Ingólfsdóttur frá Öryrkjabandalagi Íslands, Andrés Magnússon frá Samtökum verslunar og þjónustu, Þórdísi Bjarnadóttur frá Viðskiptaráði, Hildigunni Hafsteinsdóttur frá Neytendasamtökunum, Ingólf Magnússon frá Sjúkratryggingum Íslands, Stefán Úlfarsson frá Alþýðusambandi Íslands, Jónas Ragnarsson og Ragnheiði Haraldsdóttur frá Krabbameinsfélagi Íslands, Örn Gústafsson frá Okkar Líftryggingar og Ólaf Njál Sigurðsson frá Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Fjármálaeftirlitinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Hjartaheillum, Krabbameinsfélagi Íslands, Landssambandi eldri borgara, Læknafélagi Íslands, Neytendasamtökunum, ríkisskattstjóra, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum verslunar og þjónustu, Tryggingastofnun ríkisins, Viðskiptaráði Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands.
    Í frumvarpinu er lagt til að bætur úr sjúkdómatryggingu sem keyptar hafa verið fyrir 1. desember 2010 verði ekki skattlagðar. Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir að áhrif frumvarpsins á tekjur ríkissjóðs séu ekki mikil.
    Fram kom á fundum nefndarinnar sá vilji Samtaka fjármálafyrirtækja að láta skattfrelsi sjúkdómatrygginga eiga bæði við um tryggingar sem teknar hafa verið fyrir tímamark frumvarpsins og til framtíðar. Við umfjöllun nefndarinnar báru samtökin því við að slíkar tryggingar hefðu verið seldar á grundvelli skattfrelsis og að skattyfirvöld hefðu um árabil ekki gert athugasemd við þá tilhögun. Einnig telja samtökin að röksemdir að baki 61. gr. laga um vátryggingarsamninga standi til þess að fara eigi með greiðslur úr sjúkdómatryggingum á sama hátt og greiðslur úr líftryggingu í skattalegu tilliti, sbr. 2. tölul. 28. gr. tekjuskattslaga. Um sé að ræða eingreiðslubætur sem ætlað er að bæta miska vegna erfiðra veikinda en ekki áþreifanlegan kostnað eða tekjutap vegna hins sama.
    Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Laufeyjar Ólafsdóttur gegn íslenska ríkinu frá 7. júlí 2010 var ekki fallist á framangreind sjónarmið um skattfrelsi sjúkdómatrygginga. Var niðurstaðan á þá leið að slíkar bætur væru skattskyldar tekjur og á því léki ekki réttmætur vafi samkvæmt tekjuskattslögum. Ríkisskattstjóri hefur við umfjöllun nefndarinnar haldið því fram að skattframkvæmd sé reist í trausti þess að þeir sem inna af hendi skattskyldar greiðslur gefi þær upp til skattyfirvalda.
    Á móti vegur að sá skilningur sem tryggingafélög og vátryggingarmiðlarar hafa lagt til grundvallar við sölu sjúkdómatrygginga hefur skapað væntingar hjá bótaþegum og fyrirsjáanlegt er að tafir á lausn málsins geti orðið þeim til tjóns. Nefndin er því sammála um að heimila skattfrelsi vátryggingabóta vegna sjúkdómatrygginga sem keyptar hafa verið fyrir 1. desember 2010 að uppfylltum sömu skilyrðum og gilda varðandi líftryggingar, sbr. 2. tölul. 28. gr. tekjuskattslaga. Ákvæðið gerir það að skilyrði að um eingreiðslubætur sé að ræða. Meiri hluti nefndarmanna leggur jafnframt til að reglan verði látin gilda til frambúðar þannig að gætt verði jafnræðis gagnvart þeim sem keypt hafa eða kaupa munu sjúkdómatryggingar eftir umrætt tímamark. Tillagan styðst enn fremur við þau rök að með henni sé dregið úr óæskilegum áhrifum frumvarpsins á samkeppni á tryggingamarkaði. Þá er tillagan reist á þeirri forsendu að iðgjöld sjúkdómatrygginga séu jafnan greidd af tekjum sem þegar hafa sætt skattlagningu. Loks hafa við meðferð málsins verið nefnd dæmi um lönd þar sem bætur úr sjúkdómatryggingum eru ekki skattskyldar, þ.m.t. í Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Árni Þór Sigurðsson og Þuríður Backman gera fyrirvara við álitið. Fyrirvarinn lýtur að breytingartillögum sem meiri hluti nefndarmanna leggur fram.
    Lilja Mósesdóttir skrifar undir álitið og styður breytingartillögu meiri hluta nefndarmanna með fyrirvara. Hún leggur fram breytingartillögu um að skattfrelsi sjúkdómatrygginga gildi til loka árs 2014 og telur rétt að það sæti þá endurskoðun með hliðsjón af fenginni reynslu.

Alþingi, 28. mars 2011.


Helgi Hjörvar,

form., frsm.

Tryggvi Þór Herbertsson.

Árni Þór Sigurðsson,

með fyrirvara.


Magnús Orri Schram.

Birkir Jón Jónsson.

Pétur H. Blöndal.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.

Þuríður Backman,

með fyrirvara.

Lilja Mósesdóttir,

með fyrirvara.