Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 685. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1393  —  685. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Úkraínu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hauk Ólafsson, Maríu Erlu Marelsdóttur og Ragnar G. Kristjánsson frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar tveggja samninga. Annars vegar er um að ræða fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu sem undirritaður var 24. júní 2010 í Reykjavík og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Úkraínu sem undirritaður var sama dag.
    Fríverslunarsamningurinn við Úkraínu er af svokallaðri annarri kynslóð fríverslunarsamninga.
    Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Úkraínu er viðbótarsamningur og gerður með vísan til fríverslunarsamningsins. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki Úkraínu veitist Íslandi niðurfelling tolla af lifandi hrossum og tollar á lambakjöti og á vatni falla niður í skrefum.
    Vöruútflutningur til Úkraínu er nokkur. Á síðasta ári nam útflutningur til Úkraínu 2,2 milljörðum kr. Svo til eingöngu sjávarafurðir. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins. Af hálfu Úkraínu falla niður tollar af öllum sjávarafurðum, með örfáum undantekningum, frá 1. janúar 2012. Meðal þeirra undantekninga er heil síld og söltuð síld, sem ber áfram 5% toll.
    Fríverslunar- og landbúnaðarsamningarnir eru mikilvægir til að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra fyrirtækja, að mörkuðum Úkraínu. Með samningunum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í Úkraínu.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Björgvin G. Sigurðsson og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Birgitta Jónsdóttir.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.



Helgi Hjörvar.


Jón Gunnarsson.


Valgerður Bjarnadóttir.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.