Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 685. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Nr. 28/139.

Þskj. 1436  —  685. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Úkraínu.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd annars vegar fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu sem undirritaður var 24. júní 2010 í Reykjavík og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Úkraínu sem undirritaður var sama dag.

Samþykkt á Alþingi 17. maí 2011.