Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 544. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1492  —  544. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2010 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Valgerði Guðmundsdóttur frá innanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2010, frá 1. október 2010, um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2009/767/EB frá 16. október 2009 um ráðstafanir sem greiða fyrir notkun rafrænnar málsmeðferðar með upplýsinga- og þjónustumiðstöðvum samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB um þjónustu á innri markaðnum. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 1. apríl sl. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmiðið með ákvörðuninni er að kveða á um notkun rafrænna undirskrifta í tengslum við þjónustutilskipun ESB. Aðallega er um að ræða kvaðir til EES-ríkja um að setja upp svonefndan traustlista yfir vottunaraðila sem gefa út rafrænar undirskriftir.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingu á lögum um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, með síðari breytingum, fjalla um það efni. Að líkindum kemur frumvarpið til umfjöllunar í viðskiptanefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Birgitta Jónsdóttir.



Bjarni Benediktsson.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Helgi Hjörvar.



Ólöf Nordal.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.