Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 760. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1653 — 760. mál.
um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.
Safnið er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag og heyrir undir mennta- og menningarmálaráðherra.
Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna.
Stjórn safnsins er forstöðumanni þess, landsbókaverði, til ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varða starfsemi þess. Stjórnin veitir landsbókaverði umsagnir um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir og skipulag safnsins.
Landsbókavörður situr fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt.
Landsbókavörður ákveður skipulag safnsins að fenginni umsögn stjórnar og annast daglega stjórnun á starfsemi og rekstri þess. Hann ræður starfsmenn og er í fyrirsvari fyrir safnið. Hann ber ábyrgð á rekstri safnsins og að starfsemi þess sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
a. að annast alhliða upplýsinga- og þekkingarmiðlun til almennings, fræðimanna og annarrar vísinda- og fræðslustarfsemi í landinu með leiðsögn og aðgengi að upplýsingalindum í hvaða formi sem er,
b. að sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi í Háskóla Íslands, öðrum háskólum landsins og vísinda- og fræðslustarfsemi í landinu með fjölþættri upplýsinga- og þekkingarmiðlun,
c. að efla aðgang að erlendum gögnum í þágu vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs, meðal annars með því að annast framkvæmd samninga um landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum í samráði við helstu hagsmunaaðila ,
d. að varðveita handritasöfn þau og einkaskjalasöfn sem stofnað hefur verið til og vinna að frekari söfnun og rannsóknum á íslenskum handritum og einkaskjölum og samsvarandi efni á nýrri miðlum,
e. að þaulsafna íslenskum gögnum, m.a. með viðtöku skylduskila samkvæmt lögum, svo og að afla erlendra gagna er varða íslensk málefni, skrá þau, veita aðgang að þeim og varðveita til framtíðar,
f. að vinna að rannsóknum og veita aðstoð við rannsóknir á sviði bókfræði, bóksögu og bókasafns- og upplýsingafræði og veita upplýsingar um íslenska útgáfustarfsemi,
g. að stuðla að samstarfi, samræmingu og þróun starfshátta bókasafna og veita þeim faglega ráðgjöf,
h. að sinna öðrum þeim verkefnum sem tengjast starfsemi safnsins samkvæmt nánari ákvörðun landsbókavarðar í samráði við stjórn.
Safninu er heimilt að veita öðrum háskólum landsins þjónustu eftir því sem nánar er ákveðið í gagnkvæmum þjónustusamningum við einstaka háskóla.
Safninu er heimilt að gera samninga við stofnanir og aðra aðila um samstarf eða þjónustu.
Enn fremur getur safnið með samþykki mennta- og menningarmálaráðuneytis gert samkomulag við aðrar stofnanir um að litið sé á gagnakost þeirra sem hluta af safninu.
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni er heimilt að innheimta gjald fyrir þjónustu sína, svo sem útgáfu útlánsskírteina , millisafnalán, afritun, fjölföldun, gerð ljósmynda, sérfræðilega heimildaþjónustu og heimildaleit í gagnagrunnum.
Landsbókavörður setur gjaldskrá skv. 1. mgr. að fengnu leyfi stjórnar safnsins og skal hún birt notendum á aðgengilegan hátt. Umrædd gjöld skulu ekki vera hærri en raunkostnaður safnsins vegna þjónustunnar og er ætlað að standa straum af eftirfarandi kostnaðarþáttum við hana:
a. launum starfsfólks sem sinnir þjónustunni,
b. sérstökum efniskostnaði vegna þjónustunnar.
Safninu er heimilt að innheimta dagsektir fyrir afnot safnefnis fram yfir skilafrest og bætur fyrir safnefni sem glatast eða skemmist í meðförum notenda samkvæmt þeim reglum sem landsbókavörður setur skv. 1. mgr. og gjaldskrá sem landsbókavörður setur skv. 4. mgr.
Landsbókavörður setur gjaldskrá um alla gjaldtöku skv. 1. mgr. og bætur skv. 3. mgr. að fenginni umsögn stjórnar. Samanlagðar dagsektir fyrir afnot safnefnis fram yfir skilafrest mega aldrei vera hærri en 4.000 kr. fyrir hvern lánþega. Bætur fyrir safnefni sem glatast eða skemmist í meðförum notenda skulu að hámarki nema innkaupsverði viðkomandi efnis.
Lög þessi fela ekki í sér breytingar á stöðu og réttindum starfsmanna Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1653 — 760. mál.
Frumvarp til laga
um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.
(Eftir 2. umr., 7. júní.)
1. gr.
Tilgangur og hlutverk.
Safnið er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag og heyrir undir mennta- og menningarmálaráðherra.
2. gr.
Stjórn.
Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna.
Stjórn safnsins er forstöðumanni þess, landsbókaverði, til ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varða starfsemi þess. Stjórnin veitir landsbókaverði umsagnir um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir og skipulag safnsins.
Landsbókavörður situr fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt.
3. gr.
Landsbókavörður.
Landsbókavörður ákveður skipulag safnsins að fenginni umsögn stjórnar og annast daglega stjórnun á starfsemi og rekstri þess. Hann ræður starfsmenn og er í fyrirsvari fyrir safnið. Hann ber ábyrgð á rekstri safnsins og að starfsemi þess sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
4. gr.
Verkefni.
a. að annast alhliða upplýsinga- og þekkingarmiðlun til almennings, fræðimanna og annarrar vísinda- og fræðslustarfsemi í landinu með leiðsögn og aðgengi að upplýsingalindum í hvaða formi sem er,
b. að sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi í Háskóla Íslands, öðrum háskólum landsins og vísinda- og fræðslustarfsemi í landinu með fjölþættri upplýsinga- og þekkingarmiðlun,
c. að efla aðgang að erlendum gögnum í þágu vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs, meðal annars með því að annast framkvæmd samninga um landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum í samráði við helstu hagsmunaaðila ,
d. að varðveita handritasöfn þau og einkaskjalasöfn sem stofnað hefur verið til og vinna að frekari söfnun og rannsóknum á íslenskum handritum og einkaskjölum og samsvarandi efni á nýrri miðlum,
e. að þaulsafna íslenskum gögnum, m.a. með viðtöku skylduskila samkvæmt lögum, svo og að afla erlendra gagna er varða íslensk málefni, skrá þau, veita aðgang að þeim og varðveita til framtíðar,
f. að vinna að rannsóknum og veita aðstoð við rannsóknir á sviði bókfræði, bóksögu og bókasafns- og upplýsingafræði og veita upplýsingar um íslenska útgáfustarfsemi,
g. að stuðla að samstarfi, samræmingu og þróun starfshátta bókasafna og veita þeim faglega ráðgjöf,
h. að sinna öðrum þeim verkefnum sem tengjast starfsemi safnsins samkvæmt nánari ákvörðun landsbókavarðar í samráði við stjórn.
5. gr.
Samstarf við Háskóla Íslands og aðra háskóla.
Safninu er heimilt að veita öðrum háskólum landsins þjónustu eftir því sem nánar er ákveðið í gagnkvæmum þjónustusamningum við einstaka háskóla.
6. gr.
Fjárhagsmálefni.
Safninu er heimilt að gera samninga við stofnanir og aðra aðila um samstarf eða þjónustu.
7. gr.
Samningar.
Enn fremur getur safnið með samþykki mennta- og menningarmálaráðuneytis gert samkomulag við aðrar stofnanir um að litið sé á gagnakost þeirra sem hluta af safninu.
8. gr.
Gjaldtökuheimildir.
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni er heimilt að innheimta gjald fyrir þjónustu sína, svo sem útgáfu útlánsskírteina , millisafnalán, afritun, fjölföldun, gerð ljósmynda, sérfræðilega heimildaþjónustu og heimildaleit í gagnagrunnum.
Landsbókavörður setur gjaldskrá skv. 1. mgr. að fengnu leyfi stjórnar safnsins og skal hún birt notendum á aðgengilegan hátt. Umrædd gjöld skulu ekki vera hærri en raunkostnaður safnsins vegna þjónustunnar og er ætlað að standa straum af eftirfarandi kostnaðarþáttum við hana:
a. launum starfsfólks sem sinnir þjónustunni,
b. sérstökum efniskostnaði vegna þjónustunnar.
Safninu er heimilt að innheimta dagsektir fyrir afnot safnefnis fram yfir skilafrest og bætur fyrir safnefni sem glatast eða skemmist í meðförum notenda samkvæmt þeim reglum sem landsbókavörður setur skv. 1. mgr. og gjaldskrá sem landsbókavörður setur skv. 4. mgr.
Landsbókavörður setur gjaldskrá um alla gjaldtöku skv. 1. mgr. og bætur skv. 3. mgr. að fenginni umsögn stjórnar. Samanlagðar dagsektir fyrir afnot safnefnis fram yfir skilafrest mega aldrei vera hærri en 4.000 kr. fyrir hvern lánþega. Bætur fyrir safnefni sem glatast eða skemmist í meðförum notenda skulu að hámarki nema innkaupsverði viðkomandi efnis.
9. gr.
Grisjun.
10. gr.
Reglugerð.
11. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.