Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 728. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1656  —  728. mál.




Frumvarp til laga



um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.

(Eftir 2. umr., 7. júní.)



I. KAFLI


Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið og markmið.

    Lög þessi gilda um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem vegna fötlunar sinnar þarf stuðning við undirbúning upplýstrar ákvörðunar um persónuleg málefni eða aðstoð við að leita réttar síns hvort sem er gagnvart opinberum þjónustuaðilum, öðrum stjórnvöldum eða einkaaðilum.
     Ákvæði IV. kafla gilda einnig um réttindagæslu einstaklinga sem vegna afleiðinga viðvarandi sjúkdóms eða slyss þurfa stuðning við undirbúning upplýstrar ákvörðunar um persónuleg málefni eða aðstoð við að leita réttar síns hvort sem er gagnvart opinberum þjónustuaðilum, öðrum stjórnvöldum eða einkaaðilum.
    Markmið laga þessara er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við gæslu réttinda sinna.
    Við framkvæmd laga þessara skal taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

2. gr.
Yfirstjórn.

    Velferðarráðherra fer með yfirstjórn réttindagæslu fatlaðs fólks samkvæmt lögum þessum.

II. KAFLI
Réttindavakt velferðarráðuneytisins.
3. gr.

    Velferðarráðuneytið skal hafa yfirumsjón með réttindum fatlaðs fólks og skal koma á fót sérstakri réttindavakt innan ráðuneytisins.
    Hlutverk réttindavaktarinnar er að:
     a.      fylgjast með störfum réttindagæslumanna fatlaðs fólks og veita þeim ráðgjöf og leiðbeiningar eftir þörfum,
     b.      safna upplýsingum um réttindamál fatlaðs fólks og þróun í hugmyndafræði og þjónustu við fatlað fólk og koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara,
     c.      bera ábyrgð á fræðslu- og upplýsingastarfi, í samvinnu og samráði við hagsmunasamtök fatlaðra, varðandi réttindi fatlaðs fólks, svo sem fyrir hina fötluðu einstaklinga, réttindagæslumenn fatlaðs fólks, talsmenn þeirra, aðstandendur, starfsfólk og þjónustuaðila,
     d.      fylgjast með nýjungum á sviði hugmyndafræði og þjónustu við fatlað fólk sem kunna að leiða til betri þjónustu og aukinna lífsgæða fyrir fatlað fólk,
     e.      annast útgáfu á auðlesnu efni og bæklingum um réttindi fatlaðs fólks,
     f.      bera ábyrgð á fræðslu- og upplýsingastarfi í samvinnu og samráði við hagsmunasamtök fatlaðra til að upplýsa almenning um réttindi fatlaðs fólks, vinna gegn staðalímyndum og fordómum og auka vitund um getu og framlag fatlaðs fólks .

III. KAFLI
Réttindagæslumenn fatlaðs fólks.
4. gr.

    Á landinu skulu starfa svæðisbundnir réttindagæslumenn fatlaðs fólks sem ráðherra skal ráða að fenginni umsögn heildarsamtaka fatlaðs fólks. Skilyrði er að réttindagæslumenn hafi þekkingu og reynslu af málefnum og réttindum fatlaðs fólks. Leitast skal við að ráða réttindagæslumenn sem hafa menntun sem nýtist þeim í starfi.
    Réttindagæslumaður má ekki, samhliða starfi sínu sem réttindagæslumaður, starfa fyrir þjónustuaðila á viðkomandi þjónustusvæði í starfi sem er ósamrýmanlegt starfi réttindagæslumanns.
    Ráðherra skal setja reglugerð um réttindagæslumenn fatlaðs fólks og skal þar meðal annars kveðið á um fjölda þeirra.

5. gr.

     Réttindagæslumenn skulu fylgjast með högum fatlaðs fólks á sínu svæði og vera því innan handar við réttindagæslu hvers konar, hvort sem það er vegna meðferðar einkafjármuna þess, þjónustu sem það á rétt á eða varðandi önnur persónuleg réttindi eða einkamál þess.
    Búi hinn fatlaði einstaklingur á heimili fyrir fatlað fólk skal forstöðumaður viðkomandi heimilis veita réttindagæslumanni þær upplýsingar sem honum eru nauðsynlegar vegna starfs síns. Þegar um er að ræða upplýsingar sem varða persónuleg atriði eða upplýsingar um einkafjármuni hins fatlaða einstaklings skal leita eftir samþykki hans og persónulegs talsmanns hans, sbr. IV. kafla, sé slíkur talsmaður til staðar .

6. gr.

     Öllum er skylt að tilkynna til réttindagæslumanns ef þeir hafa ástæðu til að ætla að brotið sé á rétti fatlaðs einstaklings. Aðstandendur fatlaðs einstaklings, persónulegur talsmaður, þjónustuaðilar, samtök fatlaðs fólks og aðrir sem vegna stöðu sinnar, tengsla eða starfa verða varir við að réttur fatlaðs einstaklings er fyrir borð borinn skulu tilkynna það réttindagæslumanni. Fatlaður einstaklingur, sem telur að réttur hans sé fyrir borð borinn, getur tilkynnt það réttindagæslumanni á viðkomandi svæði. Réttindagæslumaður skal veita hinum fatlaða einstaklingi nauðsynlegan stuðning og kanna málið að höfðu samráði við hann. Réttindagæslumaður getur einnig hvenær sem er tekið upp mál að eigin frumkvæði. Komist réttindagæslumaður að þeirri niðurstöðu að réttur fatlaðs einstaklings hafi verið fyrir borð borinn aðstoðar réttindagæslumaður hinn fatlaða einstakling við að leita réttar síns miðað við atvik máls hverju sinni og óskir hins fatlaða einstaklings.
     Réttindagæslumaður getur, telji hann málið þess eðlis og að fengnu samþykki hins fatlaða einstaklings , komið ábendingum um úrbætur á framfæri við hlutaðeigandi aðila og gefið honum frest til að verða við ábendingunum. Verði ekki orðið við ábendingum réttindagæslumanns og hann telur að málið sé kæranlegt til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks, skal hann aðstoða hinn fatlaða við að kæra málið og vera honum innan handar varðandi rekstur málsins sé þess óskað.
    Réttindagæslumaður skal meta í hverju tilviki fyrir sig, í samráði við hinn fatlaða einstakling, hvort rétt sé að tilkynna mál til ráðuneytisins.

IV. KAFLI
Persónulegir talsmenn fatlaðs fólks.
7. gr.

     Fatlaður einstaklingur sem er lögráða en á vegna fötlunar sinnar erfitt með að gæta hagsmuna sinna skal eiga rétt á persónulegum talsmanni. Fatlaður einstaklingur velur sér talsmann og getur óskað eftir samráði þar um við réttindagæslumann á viðkomandi svæði. Réttindagæslumaður skal staðfesta val talsmanns. Hafa skal samráð við nánustu ættingja eða aðstandendur geti hinn fatlaði einstaklingur, að mati réttindagæslumanns, ekki tjáð vilja sinn í þeim efnum. Hinn fatlaði einstaklingur og persónulegur talsmaður hans skulu undirrita samkomulag um aðstoðina og skal það varðveitt af réttindagæslumanni. Geti hinn fatlaði einstaklingur ekki undirritað samkomulag er heimilt að víkja frá skilyrði um undirritun en þá skal samkomulag gert að réttindagæslumanni viðstöddum og eftir reglum sem nánar skal kveðið á um í reglugerð.
    Persónulegur talsmaður skal búa yfir þekkingu á persónulegum þörfum og áhugamálum þess einstaklings sem hann aðstoðar. Persónulegur talsmaður skal fá fræðslu um innihald og áherslur í starfi sínu. Ráðuneytinu er heimilt að gera samning við hagsmunasamtök fatlaðs fólks um milligöngu um að útvega persónulega talsmenn og annast fræðslu þeirra. Starf persónulegra talsmanna er ólaunað en persónulegur talsmaður skal fá endurgreiddan kostnað sem sannanlega fellur til vegna starfa hans í þágu hins fatlaða einstaklings .
    Allar ráðstafanir persónulegs talsmanns skulu gerðar í samráði við og með samþykki hins fatlaða einstaklings og einvörðungu með hagsmuni hans að leiðarljósi.

8. gr.

     Réttindagæslumenn skulu halda skrá um persónulega talsmenn á sínu svæði og hafa eftirlit með störfum þeirra.
     Hinn fatlaði einstaklingur getur hvenær sem er afturkallað umboð persónulegs talsmanns og skal réttindagæslumaður aðstoða hann við það óski hann eftir því. Réttindagæslumaður getur með samþykki hins fatlaða einstaklings afturkallað umboð persónulegs talsmanns, í samráði við réttindavakt ráðuneytisins, telji hann viðkomandi ekki gegna skyldum sínum gagnvart hinum fatlaða einstaklingi. Þá getur persónulegur talsmaður hvenær sem er sagt sig frá umboðinu.

9. gr.

    Persónulegur talsmaður aðstoðar fatlaðan einstakling á grundvelli samkomulags skv. 1. mgr. 7. gr. og þá einkum við eftirfarandi:
     1.      Að gæta réttar síns. Persónulegur talsmaður styður hinn fatlaða einstakling við undirbúning upplýstrar ákvörðunar um málefni sem varða hann. Skal persónulegur talsmaður vera hinum fatlaða einstaklingi til aðstoðar, m.a. þegar ákvarðanir eru teknar um þá þjónustu sem hinn fatlaði einstaklingur nýtur eða á rétt á. Sé persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings til staðar er þjónustuveitanda skylt að kalla hann til þegar til stendur að gera verulegar breytingar á þjónustunni.
     2.      Persónuleg málefni hins fatlaða einstaklings. Persónulegur talsmaður er hinum fatlaða einstaklingi innan handar varðandi persónuleg málefni og styður hann við undirbúning upplýstrar ákvörðunar, svo sem um meðferð heilbrigðisstarfsmanna , val á búsetu, atvinnu, tómstundum, o.fl. Persónulegur talsmaður skal skoða heildrænt hvort hinn fatlaði einstaklingur býr við góð lífskjör og koma ábendingum til viðkomandi um það sem betur mætti fara í samráði við hinn fatlaða einstakling .
     3.      Aðgangur að upplýsingum um fjármál. Greiði fatlaður einstaklingur gjöld í sameiginlega sjóði, til dæmis í hússjóð eða vegna sameiginlegs heimilishalds með öðrum, skal persónulegur talsmaður með samþykki hins fatlaða einstaklings eiga rétt til aðgangs að öllum upplýsingum um meðferð fjármuna úr þeim sjóðum í samræmi við samkomulag skv. 1. mgr. 7. gr. Í því skyni á talsmaður rétt til setu á húsfundum og öðrum slíkum fundum.
     4.      Aðstoð við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda. Persónulegum talsmanni er heimilt, á grundvelli samkomulags skv. 1. mgr. 7. gr., að sjá um greiðslu daglegra útgjalda fyrir fatlaðan einstakling enda fari greiðslur fram með reiðufé sem ráðstafað er af sérgreindum reikningi fyrir þess háttar útgjöld. Persónulegum talsmanni er hins vegar óheimilt að stofna til fjárhagsskuldbindinga fyrir hönd þess sem hann aðstoðar nema sá einstaklingur hafi veitt honum skriflegt umboð til þess. Hafi fötluðum einstaklingi verið skipaður ráðsmaður á grundvelli lögræðislaga tekur umboð persónulegs talsmanns ekki til þeirra eigna og fjármuna sem ráðsmaður hefur umsjón með.
    Ráðherra skal setja reglugerð um persónulega talsmenn fatlaðs fólks þar sem kveðið verður nánar á um störf þeirra, m.a. um fræðslu þeirra, form samkomulags skv. 1. mgr. 7. gr. og endurgreiðslu kostnaðar skv. 2. mgr. 7. gr.

V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
10. gr.
Þagnarskylda.

    Réttindagæslumenn fatlaðs fólks og persónulegir talsmenn þeirra skulu gæta þagmælsku um hvaðeina sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara vegna hagsmuna hins fatlaða einstaklings. Þagnarskyldan helst þó að hinn fatlaði einstaklingur andist og þó að réttindagæslumaður eða persónulegur talsmaður láti af störfum.

11. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

12. gr.
Breyting á öðrum lögum.

    37. gr. laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, fellur brott.

Ákvæði til bráðabirgða.


I.


    Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. um ráðningu réttindagæslumanna fatlaðs fólks skulu trúnaðarmenn sem skipaðir eru á grundvelli 37. gr. laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, með síðari breytingum, og reglugerðar nr. 172/2011, um trúnaðarmenn fatlaðs fólks, starfa áfram út skipunartíma sinn sem réttindagæslumenn fatlaðs fólks en að honum loknum skal ráða réttindagæslumenn í samræmi við 4. gr.

II.


    Ráðherra skal eigi síðar en 1. nóvember 2011 leggja fram á Alþingi frumvarp til laga þar sem m.a. eru lögð til ákvæði um nauðsynlegar aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk. Frumvarpið skal ráðherra láta vinna í samstarfi við innanríkisráðuneyti.

III.


    Ráðherra skal þegar við samþykkt laga þessara skipa starfshóp til að endurskoða fyrirkomulag réttindagæslu fyrir fatlað fólk með það fyrir augum að farið sé með réttindagæsluna sem mannréttindamál en ekki velferðarmál eða félagslegt málefni. Skal hópurinn leitast við að tryggja skilvirka, öfluga og framsækna leið til að sinna réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Við endurskoðunina skal taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
    Meðal þess sem starfshópurinn skal skoða eru möguleikar þess að færa verkefnið til ráðuneytis mannréttindamála, stofnun þjóðbundinnar mannréttindastofnunar til að sinna verkefninu eða að veita Mannréttindaskrifstofu Íslands lögbundið hlutverk til að sinna verkefninu. Skal hópurinn líta sérstaklega til Parísarreglna Sameinuðu þjóðanna í þessu samhengi.
    Þá skoði starfshópurinn möguleika á samnýtingu sérþekkingar með því að færa alla réttindavernd og réttindagæslu annarra hópa til sama aðila.
    Starfshópurinn verði skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, innanríkisráðuneytis, fjölbreyttum hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum. Auk þess verði leitað til mannréttindasérfræðinga og sérfræðinga á sviði réttindagæslu, réttindaverndar og fötlunarfræða.
    Starfshópurinn skal ljúka vinnu sinni eigi síðar en 31. desember 2011 og skila skýrslu til ráðherra með tillögum að lagabreytingum sem ráðherra skal kynna fyrir Alþingi.