140. löggjafarþing — 47. fundur,  24. jan. 2012.

frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.

376. mál
[17:55]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú verð ég að játa það að ég hef ekki þá þekkingu að geta svarað öllum spurningum hv. þingmanns, að minnsta kosti ekki þannig að honum þyki nægilega vel gert. Sjálf hef ég ekki velt því fyrir mér hvernig hægt er að komast í kringum eða nýta sér þær undanþágur sem hér er verið að mælast til að verði gerðar. Ég get ekki svarað því hvort það er mögulega hægt að flytja rétt áður en styrkirnir koma, eða hvað það nú var, og hvernig hægt er að fara í kringum þessa löggjöf. Ég hef ekki spekúlerað í því sjálf.