Endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi

Fimmtudaginn 23. febrúar 2012, kl. 14:02:49 (5722)


140. löggjafarþing — 61. fundur,  23. feb. 2012.

endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.

329. mál
[14:02]
Horfa

Flm. (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir) (Vg):

Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi. Tillagan hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta endurskoða lög og reglugerðir er varða uppkaup á bújörðum og öðru nytjalandi, svo og óbyggðum. Markmið með endurskoðuninni verði meðal annars:

a. að setja skýrar reglur sem miði að því að koma í veg fyrir uppkaup erlendra aðila, sem ekki hafa hér lögheimili og fasta búsetu, á landi;

b. að huga að almennum viðmiðum, svo sem landstærð, nýtingu landgæða og fjölda landareigna, sem heimilt er að sé á hendi eins og sama aðila;

c. að horfa til umhverfissjónarmiða og ákvæða um almannarétt í allri lagaumgjörð og taka þar meðal annars mið af sérstökum aðstæðum varðandi landbúnaðarland, óbyggðir og náttúruauðlindir (svo sem vatn og jarðhita);

d. að tryggja samræmi í réttarheimildum.

Með þessari þingsályktunartillögu fylgir mjög ítarleg kaflaskipt greinargerð þar sem í fyrsta lagi er farið yfir ýmsar almennar athugasemdir er þetta varðar. Í öðru lagi er svo tekin fyrir og rakin staða og þróun laga og reglna hérlendis og í þriðja lagi er farið aðeins yfir norska og danska löggjöf í þessum efnum, en Norðmenn og Danir hafa innan EES-samningsins og -svæðisins sett mun ítarlegri reglur hvað þetta varðar en við og væri vert að fara yfir þær.

Almennt er litið svo á að fjögur grundvallaratriði séu nauðsynlegar forsendur fyrir tilvist ríkis, þ.e. fólk, land, lögbundið skipulag og stjórnarfarslegt sjálfstæði. Fátt í mannkynssögunni hefur verið uppspretta jafnharðra deilna og átaka en einmitt spurningin um það hver eigi land og hver fái notið hlunninda lands. Eignarhald á landi varðar þannig samfélagslega hagsmuni sérhvers ríkis og íbúa þess. Yfirráð yfir landi eru snar þáttur í fullveldi ríkja og ein brýnasta spurning mannkyns snýst nú sem fyrr um það hver fái notið landgæða og auðlinda jarðar og með hvaða hætti.

Það ætti því ekki að koma á óvart að flest ríki setja sér lög og reglur sem takmarka á ýmsan hátt aðilaskipti að fasteignum, ekki síst landbúnaðarlandi. Þessar reglur miða meðal annars að því að tryggja að ríkisvaldið hafi með einhverju móti stjórn á viðskiptum með land og yfirsýn yfir eignarhald á því.

Víða er lögð áhersla á að halda eignarhaldi á landi og auðlindum í almannaeign, en stjórnvöld ríkja þar sem einkaeignarréttur á landi er í hávegum hafður eru mörg hver meðvituð um mikilvægi þess að halda eignarhaldi á landi í höndum eigin þegna.

Inn í þessar umræður hafa blandast vangaveltur af stjórnmálalegum toga sem tengjast áhrifum auðmanna, alþjóðlegra auðhringja og erlendra ríkja í gegnum eignarhald á landi og auðlindum. Slík umræða samtvinnast að sjálfsögðu áhyggjum manna af þverrandi auðlindum jarðar, ekki síst vegna mikilvægis þeirrar auðlindar sem kemur til með að verða einna dýrmætust í framtíðinni, þ.e. vatnsins.

Á alþjóðavísu hefur það einnig æ betur verið staðfest hvílík verðmæti felast í eignarhaldi á jarðnæði og landi, burt séð frá þeim auðlindum öðrum sem slíku landi fylgja. Í því sambandi má til að mynda nefna gott ræktar- og landbúnaðarland sem er víða orðið af skornum skammti og verður æ verðmætara. Tiltölulega lítil almenn umræða hefur farið fram hérlendis um þessi efni og mörgum spurningum er því enn ósvarað. Þær snúa ekki einungis að því hvernig varðveita skuli hér landbúnaðarland til frambúðar í heimi sem horfir fram á að þurfa að fæða milljarða manna við erfið skilyrði. Þær spurningar snúa einnig að því hvernig skuli til að mynda farið með öræfi landsins, víðerni, óbyggðir, landslag, náttúrufarsleg gæði og jarðsögulegar minjar og á hvaða forsendum land skuli metið. Þegar rætt er um framtíðarsýn fyrir land og þjóð í þessum efnum skiptir eignarhald á landi og auðlindum augljóslega sköpum.

Samkvæmt íslenskri löggjöf helst eignarhald á landi í hendur við eignarhald á þeim auðlindum sem landareigninni fylgja. Í 3. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998, er kveðið á um að eignarlandi fylgi eignarréttur að auðlindum í jörðu. Í 1. gr. þessara laga eru auðlindir skilgreindar og sagt að átt sé við hvers konar frumefni, efnasambönd og orku sem vinna má úr jörðu, hvort heldur er í föstu, fljótandi eða loftkenndu formi og án tillits til hitastigs sem þau kunna að finnast við. Þarna er átt við grunnvatn og öll gosefni og önnur steinefni, málma, málmblendinga og málmsteindir, kol, jarðolíu, jarðgas og önnur nýtanleg efni sem finnast kunna.

Enda þótt skipulagsyfirvöld hafi í hendi sér að setja ýmsar takmarkanir á nýtingu auðlinda liggur í augum uppi að eignarréttur á landi hérlendis er mjög afgerandi og hefur í för með sér yfirgripsmikinn einkaeignarrétt á auðlindum. Í því samhengi þarf vart að fjölyrða um stöðu laga og reglna hérlendis þegar kemur að vatnsauðlindinni sérstaklega. Íslendingar búa enn við lagaumhverfi sem skilgreinir grunnvatn, þaðan sem meðal annars drykkjarvatn landsmanna er fengið, sem hluta af landareign. Það er skammsýni að líta á slíkt sem minni háttar mál eða sem spurningu um viljayfirlýsingu af hálfu hugsanlegra eigenda lands. Enn hefur ekki verið sett heildstæð löggjöf sem tekur til alls vatns, yfirborðsvatns jafnt sem grunnvatns, og sem breyti stefnunni í þessum efnum. Óhætt er hins vegar að fullyrða að til framtíðar litið sé þetta eitt mesta hagsmunamál komandi kynslóða hérlendis.

Í þessu samhengi verður einnig að gæta að ýmsum öðrum þáttum er snúa að almannarétti. Samkvæmt lögum er hægt að tryggja aðgengi almennings að eignarlandi að einhverju leyti og það skiptir vissulega máli þegar um er að ræða eignarhald á náttúruperlum og víðernum landsins. Hitt er þó ljóst að það hefur reynst æ erfiðara í framkvæmd að tryggja óskoraðan rétt almennings til að fá að njóta náttúrugersema sem eru í skilgreindri einkaeign. Fullyrða má að réttur almennings hafi á ýmsan hátt verið fyrir borð borinn eftir að fyrirtæki og fjárfestar, sem ekki stunda búskap, fóru að kaupa upp jarðir í verulegum mæli. Gömlum þjóðleiðum og óræktuðu landi hefur verið lokað og girt hefur verið fyrir umferð vegfarenda á svæðum sem réttilega ætti að vera allra að fá að njóta. Einboðið er að halda gömlum leiðum opnum fyrir almenna vegfarendur og að bílvegir þeir sem haldið er við af opinberu fé standi öllum til boða. Full ástæða er til að hafa þetta í huga við endurskoðun laga og reglna í þessum efnum með almannarétt að leiðarljósi.

Eins og ítarlega er gerð grein fyrir í þeirri greinargerð sem málinu fylgir í kafla II hefur þróun löggjafar hér á landi í seinni tíð verið í þá átt að aflétta hömlum á viðskiptum með fasteignir og afnema heimildir stjórnvalda til að hafa áhrif á aðilaskipti að þeim. Upp á síðkastið hefur verið gengið gegn þeirri meginforsendu sem frá upphafi fullveldis íslenska ríkisins var rauður þráður í umræðum um þessi mál — þeirri nálgun að vegna smæðar þjóðarinnar og víðfeðmis landsins væri þörf á strangari löggjöf í þessum efnum hérlendis en tíðkast víða erlendis. Hér hefur með ýmsum hætti verið opnað á heimildir sem önnur mun fjölmennari ríki setja skýrari skorður við.

Ákveðin vatnaskil urðu augljóslega með aðild Íslands að EES-samningnum. Djúpur ágreiningur var einmitt á sínum tíma um þau ákvæði er sneru að kaupum á landi sérstaklega og kallað var eftir því að í þessum efnum yrðu settar skýrari skorður í samningsgerðinni. Athygli vekur að í kjölfarið virðist sem gengið hafi verið enn lengra í að opna á heimildir til landakaupa en skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum gera ráð fyrir. Samanburður við dönsk og norsk lög í III. kafla þessarar greinargerðar sýnir að íslensk löggjöf setur mun minni hömlur á aðilaskipti og ráðstöfun fasteigna en löggjöf þessara frændþjóða okkar. Að sjálfsögðu þarf að fara ítarlega yfir þetta við alla endurskoðun á þessum málum.

Magma-málið afhjúpaði meðal annars óskýrleika laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri að því er varðar heimildir aðila frá ríkjum utan EES til fjárfestinga í íslenskum orkufyrirtækjum og orkuauðlindum. Í skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál að því er varðar Magma-málið er að finna greiningu á þeim hagsmunum sem tengdir eru eignarhaldi á orkuauðlindum og orkufyrirtækjum. Þar er til að mynda vikið að þeim efnahagslegu og pólitísku áhrifum sem bundin eru eignarhaldi á mikilvægum auðlindum og bent á þau vandamál sem leiða af smæð íslenska hagkerfisins í þessu sambandi. Fram kemur til að mynda að í stærri ríkjum kunni að vera nóg að setja ákvæði um forkaupsrétt eða heimildir til eignarnáms til að tryggja hagsmuni ríkis gagnvart erlendu eignarhaldi. Hér kunni mál hins vegar að þróast með þeim hætti að slík úrræði komi að litlu haldi ef verð og bótagreiðslur reynist ríkinu ofviða þannig að það hafi ekki burði til að leysa til sín nauðsynleg réttindi. Þær röksemdir sem þarna koma fram eiga einnig við um kaup á stórum landsvæðum á Íslandi og undirstrika mikilvægi þess að löggjöf um þetta réttarsvið sé markviss og skýr. Slíku er því miður ekki til að dreifa. Þar með eykst hættan á að réttur og hagur almennings sé og verði fyrir borð borinn þegar kemur að aðgengi komandi kynslóða að eigin landi og auðlindum.

Í ljósi nýliðinna atburða og mikils áhuga erlendra auðjöfra til að komast yfir bæði jarðnæði og auðlindir á Íslandi er brýnt að skerpa á allri sýn, löggjöf og reglum sem varða eignarhald á landi og auðlindum hérlendis. Stjórnvöld hafa þegar lýst því yfir að þau hyggist endurskoða lög um auðlindir í jörðu en á meðan engar niðurstöður liggja fyrir í þeim efnum er lagaumhverfið óbreytt.

Í þessu samhengi hefur hins vegar farið mun minna fyrir umræðu um verðmæti lands í sjálfu sér og þeirri þróun sem þar hefur átt sér stað bæði heima og erlendis. Þær grunnforsendur sem ég vék að hér áðan og ávallt var lagt upp með, þ.e. að fámennu og víðfeðmu ríki væri nauðsynlegt að halda vel utan um uppkaup á landi og setja þröngar og skýrar reglur þar að lútandi, hafa ekki verið virtar. Spyrja má hvort sú þróun sé í reynd í takt við þjóðarviljann og hvort stórfelld landakaup af hálfu erlendra auðmanna, auðhringja eða jafnvel ríkja séu í sátt við fólkið í landinu. Það má að minnsta kosti fullyrða að þær stórvægilegu breytingar sem á undanförnum áratugum hafa verið gerðar á löggjöf og regluverki hérlendis í þessum efnum þarfnist mun ítarlegri, opnari og upplýstari umræðu en hingað til hefur farið fram svo að ljóst megi verða hvert beri að stefna.

Eins og greinargerð málsins ber með sér hefur í reynd sárlega vantað upp á að þessi mál séu rædd í þaula og að dregin hafi verið upp sú stefna til framtíðar sem rétt þykir að fylgja. Þar hlýtur réttur komandi kynslóða að vega þyngst en ekki stundarhagsmunir. Við skoðun málsins ættu menn að geta sameinast um að setja skorður við meiri háttar uppkaupum á landi, jarðnæði og auðlindum hérlendis, ekki síst þar til alvörustefnumótun, opin umræða og heildarendurskoðun viðkomandi lagabálka hefur farið fram. Það er afar brýnt að gera það.

Eins og ég hef sagt er í greinargerðinni ítarleg greining á sögu og þróun reglu- og lagaumhverfisins hérlendis sem og samanburður við lagaumhverfi í Noregi og Danmörku. Sá samanburður er mjög stuttur og þarfnast mun ítarlegri skoðunar og í framhaldinu er full ástæða til að fara í ítarlegri samanburð við önnur ríki í þessum efnum. Eins og ég kom inn á í máli mínu áðan eru ýmis ríki einmitt að endurskoða þessi mál hjá sér að fenginni reynslu.

Tími minn er senn á þrotum en mig langar að segja eitt að lokum. Það er ekki endilega víst og reyndar alls ekki víst að allir séu sammála upplegginu í nákvæmlega þessu máli, hvað varðar uppkaup á jörðum, en ég held að það hljóti að vera til staðar ríkur vilji og staðfastur meiri hluti innan þingsins um hversu áríðandi það er að fara í endurskoðun á lagaumhverfinu hvað varðar uppkaup á landi, að skoða þessi mál í kjölinn í staðinn fyrir að þau æxlist einhvern veginn án þess að skýr stefnumótun til framtíðar liggi fyrir. Þetta mál er sprottið af nýlegum atburðum, þ.e. áhuga kínversks fjárfestis á Grímsstöðum á Fjöllum, en fleiri mál munu að sjálfsögðu koma upp og það er skylda okkar að sjá svo um að stefna liggi fyrir og endurskoðun laganna liggi fyrir með það að sjónarmiði að tryggja rétt komandi kynslóða á landinu okkar áður en óljós lagasetning og opin, sem er ef til vill ekki einu sinni meiri hluti fyrir, heldur öllu hér áfram opnu (Forseti hringir.) upp á gátt.