ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég ræði hér greinina um framsal ríkisvalds eða spyr hv. þingmann út í hana. Ástæðan er vitanlega sú að í þessu skjali eru fimm spurningar settar á blað sem eftir því sem ég kemst næst eru komnar frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og hlýtur að vera sérstakt áhugamál meiri hlutans að spyrja um. Hér eru tvær spurningar sem lúta í rauninni að svipuðum hlutum varðandi persónukjör eða vægi atkvæða.
Ég hlýt því að velta fyrir mér: Eru það skilaboð frá meiri hluta nefndarinnar að spurningar eins og sú er ég velti hér upp varðandi framsal ríkisvalds séu svo ómerkilegar og veigalitlar að ekki eigi að setja þær inn í þetta? Skiptir meira máli að soga allt atkvæðavægið til Reykjavíkur sem ræður öllu í þessu landi og skekkja þar með enn meira muninn sem er á landsbyggð og höfuðborg? Skiptir það meira máli vegna þess að það er væntanlega eitthvert áhugamál meiri hluta nefndarmanna? (Forseti hringir.)
Þessi tillaga er mjög illa unnin og vantar allan rökstuðning á bak við hana.