140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 161/2011 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn.

570. mál
[22:16]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég geri hér grein fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2011, sem varðar félagarétt. Framsögumaður nefndarinnar með þessu máli er hv. þm. Árni Páll Árnason en ég geri grein fyrir nefndarálitinu.

Markmið með ákvörðun 2010/485/ESB er að greiða fyrir samvinnu lögbærra yfirvalda aðildarríkjanna og lögbærra yfirvalda í tilteknum þriðju ríkjum, þ.e. Ástralíu og Bandaríkjunum, hvað varðar eftirlit, gæðaeftirlit og rannsóknir, en jafnframt að tryggja að réttinda hlutaðeigandi aðila sé gætt. Þau yfirvöld sem hér um ræðir eru þau sem gegna eftirlitshlutverki gagnvart endurskoðendum. Hér á landi er það endurskoðendaráð.

Fram kemur í athugasemdum við tillöguna að innleiðing ákvörðunar 2010/485/ESB kallar á breytingar á lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur. Efnahags- og viðskiptaráðherra hyggst leggja fram lagafrumvarp á yfirstandandi löggjafarþingi til innleiðingar á ákvæðum hennar. Lagabreytingarnar munu hafa í för með sér óverulegan kostnað sem hlýst af milligöngu endurskoðendaráðs við afhendingu skjala. Ekki er gert ráð fyrir að breytingarnar hafi stjórnsýslulegar afleiðingar hér á landi né heldur efnahagslegar fyrir einkaaðila.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Ragnheiður E. Árnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Árni Páll Árnason, framsögumaður, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Mörður Árnason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.