veiðigjöld.
Herra forseti. Það er nákvæmlega það sem ég sagði, þegar illa gengur bitnar það illilega á öllum íbúum í bæjarfélögum sem byggja lífsafkomu sína á sjávarútveginum. Ég spurði um hvernig það væri þegar vel gengi og eins þegar kvótinn væri seldur frá byggðarlögunum.
Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, undanfarið hafa sjómenn haft gríðarlega góðar tekjur og þeir eru ekkert ofsælir af þeim. Þær skila sér í útsvari og tekjum til bæjarfélagsins og umsvifum þar. Við skulum heldur ekki gleyma því sem þessi hæstv. ríkisstjórn hefur gert með því að fella niður virðisaukaskatt og hvetja til vinnu til þess einmitt að endurnýja og gera við hús, ég og hv. þingmaður þurfum greinilega báðar að fara að drífa í því að gera það.
Ég legg áherslu á að með þessum frumvörpum er verið að tryggja að kvótinn, fiskurinn í sjónum, sé sameign allrar þjóðarinnar og (Forseti hringir.) að umframarðurinn af þeirri auðlind eigi að skila sér til íbúanna allra. Ég held að við hv. þingmaður séum sammála um það. (Gripið fram í.)