Atvinnutengd starfsendurhæfing og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða

Mánudaginn 11. júní 2012, kl. 18:57:23 (13212)


140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

atvinnutengd starfsendurhæfing og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.

735. mál
[18:57]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þær breytingartillögur sem hér eru lagðar til við frumvarpið eru til bóta og ég mun því greiða þeim breytingartillögum atkvæði mitt og vonast til að þingmenn geri slíkt hið sama. Ég mun hins vegar sitja hjá við heildarafgreiðslu frumvarpsins.