Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 03. nóvember 2011, kl. 12:31:39 (1172)


140. löggjafarþing — 17. fundur,  3. nóv. 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

195. mál
[12:31]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Vegna ummæla hv. þingmanns vill forseti geta þess að dagskrá þessarar viku lá fyrir í upphafi vikunnar eftir fund hjá forseta Alþingis bæði í forsætisnefnd og með þingflokksformönnum og dagskrá þessa fundar var birt á vef Alþingis um leið og fundi lauk í gær og hefur verið sýnileg frá og með þeim tíma.