Sjúkratryggingar og lyfjalög

Föstudaginn 02. desember 2011, kl. 15:30:37 (2426)


140. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2011.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

256. mál
[15:30]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. velferðarráðherra fyrir þessar upplýsingar. Ég brýni enn og aftur fyrir hæstv. velferðarráðherra, hv. velferðarnefnd og formanni nefndarinnar að horfa til þess eins og hæstv. ráðherra sagði að fyrstu skammtar verði í það minnsta minnkaðir og horft til þess sparnaðar sem af því hlýst. Ég brýni það fyrir hæstv. ráðherra, hv. velferðarnefnd og formanni hennar.