Fjársýsluskattur

Föstudaginn 16. desember 2011, kl. 14:22:37 (3423)


140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

fjársýsluskattur.

193. mál
[14:22]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um að skatturinn leggist ekki á lífeyrissjóði en af þeim mun meiri þunga á aðrar fjármálastofnanir. Við greiðum því atkvæði með þessu. En bara svo menn viti það munu gjafirnar til lífeyrissjóðanna í formi skatta koma fram hjá ríkisstjórninni í öðrum frumvörpum sem við ræðum væntanlega fljótlega.