Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 275 — 97. mál. 2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2011.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (SII, OH, BjörgvS, BVG, ÁÞS).
1.
Við 4. gr. Liður 7.19 orðist svo:
7.19 Að selja eignarhlut ríkisins í Byr hf. sem stofnaður var á grundvelli 1. mgr. 1. gr.
laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., og semja í stað víkjandi láns um allt að 5 milljarða
króna mögulega lausafjárfyrirgreiðslu við kaupanda félagsins.
2.
Við 4. gr. bætist nýir liðir, svohljóðandi:
3.16 Að selja eignarhlut ríkissjóðs í fasteigninni Álfheimum 28, Reykjavík, og ráðstafa
andvirðinu til Barnaspítala Hringsins í samræmi við ákvæði erfðaskrár.
7.22 Að gera samning um fjármögnun gangaframkvæmda við Vaðlaheiðargöng hf.,
félag sem var stofnað á grundvelli 2. gr. laga nr. 97/2010, um stofnun hlutafélaga
um vegaframkvæmdir.
7.23 Að veita Hörpu skammtímalán þar til samið hefur verið um langtímafjármögnun
verkefnisins.