Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 359. máls.

Þingskjal 435  —  359. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum um sjúkratryggingar,
nr. 112/2008, með síðari breytingum
(samningar Sjúkratrygginga Íslands, frestun).

(Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)




1. gr.

    Í stað orðanna „1. janúar 2012“ í 2. málsl. 2. mgr. 56. gr. laganna kemur: 1. janúar 2014.

2. gr.

    Í stað orðanna „1. janúar 2012“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2014.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Samkvæmt lögum um sjúkratryggingar skal sjúkratryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, annast alla samningsgerð um kaup á heilbrigðisþjónustu. Lögin tóku gildi 1. október 2008 en gert var ráð fyrir að ákvæði IV. kafla laganna að því er varðar samninga sem heilbrigðisráðuneytið hafði gert kæmu til framkvæmda eigi síðar en 1. júlí 2009 og gekk það að mestu leyti eftir. Enn fremur var fyrirhugað að ákvæði um samninga við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins og samninga við sveitarfélög og aðra sem reka hjúkrunarheimili kæmu til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2010. Það gekk hins vegar ekki eftir og var frestað til 1. janúar 2011 með lögum nr. 121/2009 og aftur frestað til 1. janúar 2012 með lögum nr. 147/2010.
    Nú er ljóst að enn vantar nokkuð upp á að Sjúkratryggingar Íslands verði í stakk búnar að semja við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins, svo og sveitarfélög og aðra er reka hjúkrunarheimili. Í IV. kafla laga um sjúkratryggingar er að finna ítarlega lýsingu á fyrirkomulagi og aðferðafræði samningsgerðar og eftirfylgni. Margháttaðar kröfur um uppbyggingu og þróun eru gerðar til Sjúkratrygginga Íslands og þeirra aðila sem gert er ráð fyrir að hún semji við. Við núverandi aðstæður hefur stofnunin ekki yfir að ráða nauðsynlegum mannafla og fjárveitingum til að hún geti sinnt að fullu því hlutverki sem henni er ætlað samkvæmt kaflanum. Rétt þykir því að fresta enn um sinn gildistöku ákvæða um samninga við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins og samninga við sveitarfélög og aðra er reka hjúkrunarheimili. Lagt er til að gildistöku verði frestað í tvö ár. Af því leiðir að framlengja þarf heimild ákvæðis til bráðabirgða IV til ákvörðunar á daggjöldum vegna hjúkrunarrýma með reglugerð. Lagt er sú heimild verði framlengd um tvö ár.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (samningar Sjúkratrygginga Íslands, frestun).

    Með frumvarpinu er lagt til að gerð samninga um heilbrigðisþjónustu sem velferðarráðuneytið og áður heilbrigðisráðuneytið hafa séð um og gert við heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og rekstraraðila hjúkrunarheimila flytjist til Sjúkratrygginga Íslands eigi síðar en 1. janúar 2014 í stað 1. janúar 2012 þar sem velferðarráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands telja að stofnunin sé ekki tilbúin að taka við verkefninu. Gildistökunni er því frestað um tvö ár. Þá er einnig lagt til í frumvarpinu að heimild ráðherra til að ákvarða daggjöld vegna heilbrigðisþjónustu sem veitt er í hjúkrunarrýmum sjúkrahúsa og hjúkrunarrýmum öldrunarstofnana og hjúkrunarheimila verði framlengd til 1. janúar 2014 en í gildandi lögum hefur ráðherra þessa heimild til 1. janúar 2012.
    Gerð þjónustusamninga sem heilbrigðisráðuneytið hafði með höndum vegna heilbrigðisþjónustu á vegum einstaklinga, fyrirtækja og annarra sjálfseignarstofnana en rekstraraðila hjúkrunarheimila var færð til Sjúkratrygginga Íslands 1. júlí 2009.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.