Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 198. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 823  —  198. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um vestnorrænt samstarf
um meðferð á endurvinnanlegu brotajárni.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólínu Þorvarðardóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að láta, í samvinnu við Færeyjar og Grænland, skilgreina sameiginlega hagsmuni landanna með tilliti til meðferðar á endurvinnanlegu brotajárni og gefa Vestnorræna ráðinu skýrslu um hvernig meðferð þess er háttað í löndunum þremur.
    Tillagan byggist á ályktun nr. 4/2011 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 24. ágúst 2011 á Bifröst en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Mörður Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 24. janúar 2012.



Sigmundur Ernir Rúnarsson,


framsögumaður.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Gunnar Bragi Sveinsson.


Ásmundur Einar Daðason.


Auður Lilja Erlingsdóttir.