Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 199. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 824  —  199. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um vestnorrænt samstarf um listamannagistingu.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólínu Þorvarðardóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að kanna möguleika á samstarfi við Færeyjar og Grænland um að gefa listamanni frá einu af vestnorrænu löndunum árlega kost á gistingu í öðru vestnorrænu landi. Tilgangurinn verði sá að gera vestnorrænum listamanni eða rithöfundi kleift að dvelja um skeið í öðru vestnorrænu landi og njóta innblásturs frá náttúru og menningu þess lands í listsköpun sinni.
    Tillagan byggist á ályktun nr. 3/2011 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 24. ágúst 2011 á Bifröst en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Mörður Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 24. jan. 2012.



Sigmundur Ernir Rúnarsson,


frsm.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Gunnar Bragi Sveinsson.


Ásmundur Einar Daðason.


Auður Lilja Erlingsdóttir.