Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 904, 140. löggjafarþing 374. mál: varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (hættumat vegna eldgosa).
Lög nr. 22 12. mars 2012.
Þingskjal 904, 140. löggjafarþing 374. mál: varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (hættumat vegna eldgosa).
Lög nr. 22 12. mars 2012.
Lög um breytingu á lögum nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 1. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Jafnframt er heimilt að taka þátt í kostnaði við vinnu á hættumati vegna annarrar náttúruvár eins og nánar greinir í lögum þessum.2. gr.
Við 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna bætist: eins og það er skilgreint í reglum sem ráðherra setur skv. 6. mgr.3. gr.
Í stað 1. málsl. 1. mgr. 13. gr. laganna koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Fé ofanflóðasjóðs, sbr. 12. gr., skal notað til að greiða kostnað við rekstur sjóðsins og ofanflóðanefndar, svo og kostnað við varnir gegn ofanflóðum. Jafnframt er heimilt að nota fé ofanflóðasjóðs til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa. Kostnaður við varnir gegn ofanflóðum greiðist sem hér segir.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og falla úr gildi 31. desember 2014.Samþykkt á Alþingi 28. febrúar 2012.