Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 608. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 965  —  608. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldeyrismál,
nr. 87/1992, með síðari breytingum.

Frá Helga Hjörvar.


    3. gr. orðist svo:
    Eftirtaldar breytingar verða á 13. gr. n laganna:
     a.      Orðin „2. mgr. 13. gr. b“ í 4. mgr. falla brott.
     b.      Við bætist ný málsgrein sem verður 5. mgr., svohljóðandi:
                      Innstæður í reiðufé í erlendum gjaldeyri í eigu lögaðila skv. 4. mgr. hjá erlendum fjármálafyrirtækjum eða hjá Seðlabanka Íslands eins og þær stóðu við lok dags 12. mars 2012 skulu jafnframt undanþegnar bannákvæði 2. mgr. 13. gr. b. Fjármagnshreyfingar sem framkvæmdar eru á grundvelli 1. málsl. þessarar málsgreinar skulu tilkynntar Seðlabanka Íslands. Seðlabanki Íslands skal svo fljótt sem við verður komið setja reglur um hvernig undanþágur frá 2. mgr. 13. gr. b verða veittar vegna reiðufjár í erlendum gjaldeyri sem til fellur eftir 12. mars 2012 og er í eigu lögaðila skv. 4. mgr. hjá erlendum fjármálafyrirtækjum eða hjá Seðlabanka Íslands.