Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 147. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1091  —  147. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn.

Frá Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Unni Brá Konráðsdóttur.


    Í stað 1. málsl. 3. mgr. 13. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Læknir ber ábyrgð á læknisfræðilegri greiningu og meðferð sjúklinga sem til hans leita eða hann hefur umsjón með. Aðrir heilbrigðisstarfsmenn bera, eftir því sem við á, ábyrgð á greiningu og meðferð sjúklinga sem til þeirra leita.