Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 572. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1216  —  572. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 17/2011 um breytingu á XIII. viðauka
(Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhönnu B. Bjarnadóttur og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Helgi Jóhannesson frá Siglingastofnun. Málið var sent til umsagnar til umhverfis- og samgöngunefndar en engar athugasemdir bárust.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2011, frá 1. apríl 2011, um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 392/2009 frá 23. apríl 2009 um bótaábyrgð flutningsaðila vegna slysa við farþegaflutninga á sjó. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 1. október 2011. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur innan Evrópska efnahagssvæðisins um réttindi og skyldur farþega og flutningsaðila á sjó þegar óhapp verður, og færa þær til nútímahorfs. Hluti af því er að til staðar sé regluverk er kveður á um fullnægjandi bætur fyrir farþega sem verða fyrir tjóni þegar þeir ferðast með farþegaskipum.
    Fram kemur í athugasemdum við tillöguna að innleiðing reglugerðar (EB) nr. 392/2009 kallar á breytingar á siglingalögum, nr. 34/1985, einkum á ákvæðum laganna er varða bótaábyrgðarkerfið. Í reglugerðinni er mælt fyrir um strangari bótaábyrgð en kveðið er á um í núgildandi siglingalögum. Þá eru hærri takmarkanir á bótaábyrgð flutningsaðila samkvæmt reglugerðinni. Einnig má nefna þá reglu sem kemur fram í 6. gr. reglugerðarinnar um fyrirframgreiðslu bóta þegar mannskaði eða slys á fólki verður vegna óhapps á sjó eins og það er skilgreint í Aþenusamningnum. Fyrirhugað er að innanríkisráðherra leggi fram lagafrumvarp um breytingu á siglingalögum á næsta löggjafarþingi til innleiðingar á ákvæðum reglugerðarinnar. Lagabreytingarnar kunna að hafa í för með sér aukinn tilkostnað fyrir þá einkaaðila sem stunda atvinnurekstur í farþegaflutningum á sjó og hafa ekki tryggingar sem uppfylla kröfur samkvæmt reglugerðinni. Ekki er gert ráð fyrir að lagabreytingarnar hafi í för með sér stjórnsýslulegar afleiðingar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Ragnheiður E. Árnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 29. mars 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


formaður.


Árni Páll Árnason,


framsögumaður.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.



Gunnar Bragi Sveinsson.


Mörður Árnason.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.