Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1242  —  672. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar
um námsheimild til að hefja ökunám.

    1.     Við hvaða grein í umferðarlögum styðst það ákvæði að til þess að hefja ökunám þurfi heimild frá sýslumanni, sbr. reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini?
    Ráðherra er heimilt skv. 52. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, að setja reglur um ökunám og ökukennslu, m.a. um kröfur sem uppfylla þarf til að öðlast ökuleyfi. Ástæða þess að sett var í reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011, skilyrði um að sá sem hyggur á ökunám fái námsheimild áður en nám hefst er að ítrekað hafði komið fyrir að ökunemi hefði tekið öll tilskilin próf til að öðlast ökuleyfi með þeim kostnaði sem því fylgir, en síðan komið í ljós að viðkomandi uppfyllti ekki kröfur til að öðlast ökuskírteini. Oftast byggðist það á því að búsetuskilyrði eða læknisfræðilegar ástæður leiddu til þess að viðkomandi uppfyllti ekki kröfur sem settar eru til að öðlast ökuleyfi. Því var ákveðið að kanna þessi atriði áður en viðkomandi hæfi ökunám í stað þess að gera það eftir að ökunámi væri lokið. Uppfylli umsækjandi um ökunám öll skilyrði gefur sýslumaður út námsheimild, en með því er staðfest að viðkomandi getur öðlast ökuleyfi standist hann/hún ökuprófið.

    2.     Er vitað um einhverja íslenska hliðstæðu, þ.e. að leyfi sýslumanns þurfi til að hefja nám í tiltekinni grein?
    Ekki er í raun hægt að líkja ökunámi við annað hliðstætt nám, flóknar reglur gilda um heilbrigðis- og búsetukröfur í reglugerð um ökuskírteini, sem ekki er hægt að ætlast til að sá sem hyggur á ökunám hafi vitneskju um. Til grundvallar því að sýslumaður gefi út námsheimild liggja sanngirnissjónarmið, þ.e. að ekki sé farið út í dýrt ökunám og síðan komi í ljós að viðkomandi geti ekki öðlast ökuleyfi vegna krafna á grundvelli heilbrigðis eða búsetu.

    3.     Eru hliðstæðar reglur í öðrum vestrænum löndum?

    Þessar reglur voru settar eftir að kvartanir höfðu ítrekað borist ráðuneytinu þar sem ökunemi hafði staðist ökupróf en ekki uppfyllt skilyrði til að öðlast ökuleyfi. Ekki er vitað um fyrirkomulag í öðrum vestrænum löndum, en engar kvartanir hafa borist vegna þessa nýja fyrirkomulags til ráðuneytisins.