Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1259 — 642. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar
um áhrif ESB á umræður um ESB-aðild.
1.
Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka
sem heyra undir ráðuneytið?
Forsætisráðuneytið tekur virkan þátt í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, meðal
annars með aðkomu fulltrúa ráðuneytisins í aðalsamninganefnd og nokkrum samningahópum.
Forsætisráðuneytið á samráð við fulltrúa allra erlendra sendiráða hér á landi eftir því sem
þurfa þykir og gildir það sama um sendinefnd Evrópusambandsins. Hvorki sendiherrann né
sendinefndin hafa blandað sér með beinum eða óbeinum hætti í þau málefni sem undir forsætisráðuneyti heyra.
2.
Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB
ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
Hluti af því að efla umræðu og upplýsingamiðlun um Evrópusambandið á meðan á aðildarferlinu stendur er að fjármunum hefur verið veitt, af Alþingi, til þeirra hreyfinga og
samtaka sem halda uppi mismunandi sjónarmiðum í umræðunni.
Með öflugri og upplýstri umræðu þar sem öllum er gefinn kostur á þátttöku verður endanleg niðurstaða um aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu byggð á upplýstri ákvörðun.
Að öðru leyti er vísað til svars við 1. tölul., enda liggur fyrir að Alþingi, sem ákvað að
aðildarviðræður skyldu hafnar, hefur gert sitt til þess að tryggja að fjölbreytt sjónarmið og
upplýsingar fái sess í umræðunni.