Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1296 — 571. mál. Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 147/2009 um breytingu á XVIII. viðauka (Öryggi og hollustu-
hættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti kynjanna) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhönnu B. Bjarnadóttur og Bergþór
Magnússon frá utanríkisráðuneyti, Ernu Jónsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti og
Björgu Fenger frá velferðarráðuneyti. Málið var sent til umsagnar til velferðarnefndar en
engar athugasemdir bárust.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 147/2009, frá 4. desember 2009, um breytingu á XVIII. viðauka
(Öryggi og hollustuhættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti kynjanna) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun ráðsins 2004/113/EB frá 13.
desember 2004 um beitingu meginreglunnar um jafna meðferð kvenna og karla að því er
varðar aðgang að og afhendingu á vörum og þjónustu. Sex mánaða frestur, samkvæmt
EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 4. júní 2010. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega
meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
Með tilskipuninni eru settar reglur til að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kynferðis
vegna viðskipta með vöru og þjónustu, með það að markmiði að koma til framkvæmda
meginreglunni um jafna meðferð karla og kvenna.
Innleiðing tilskipunar 2004/113/EB kallar á lagabreytingar hér á landi og hyggst velferðarráðherra leggja fram lagafrumvarp á næsta löggjafarþingi til innleiðingar á ákvæðum
hennar. Innleiðingin mun hafa í för með sér breytingar á lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnframt verður skoðað hvort breyta þurfi lögum nr. 30/2004,
um vátryggingarsamninga. Velferðarráðuneytið mun vinna að innleiðingunni í nánu samstarfi
við efnahags- og viðskiptaráðuneytið og Jafnréttisstofu. Ef innleiðingin leiðir til breytinga
á lögum um vátryggingarsamninga verður einnig haft samráð við Fjármálaeftirlitið og starfandi tryggingafélög á markaði. Ekki er gert ráð fyrir að efni tilskipunarinnar hafi í för með
sér teljandi efnahagsleg eða stjórnsýsluleg áhrif. Í umræðum innan nefndarinnar komu m.a.
fram efasemdir hjá nokkrum nefndarmönnum um hvort tilskipuninun stuðli í reynd að
jafnrétti kynjanna en nefndin telur hins vegar óhjákvæmilegt annað en að samþykkja tillöguna.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi
við afgreiðslu málsins.