um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2010 um
breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2010, frá 10. nóvember 2010, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn
eftirtaldar gerðir:
1.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu á
lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS).
2.
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/83/EB frá 27. júlí 2009 um breytingu á tilteknum viðaukum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/48/EB að því er varðar
tæknileg ákvæði um áhættustýringu.
3.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/110/EB frá 16. september 2009 um stofnun
og rekstur rafeyrisfyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim, breytingu á tilskipunum
2005/60/EB og 2006/48/EB og um niðurfellingu á tilskipun 2000/46/EB.
4.
Tilmæli framkvæmdastjórnarinnar 2009/384/EB frá 30. apríl 2009 um starfskjarastefnu
á sviði fjármálaþjónustu.