um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og
aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa og landbúnaðarsamnings
milli Íslands og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd annars vegar fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa sem undirritaður var 22. júní 2009 í Hamar og hins vegar
landbúnaðarsamning milli Íslands og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa
sem undirritaður var sama dag.