um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og
Hong Kong, Kína, samnings um vinnumál milli sömu aðila og landbúnaðarsamnings
milli Íslands og Hong Kong, Kína.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Hong Kong, Kína sem undirritaður var af ráðherrum EFTA-ríkjanna og af Hong Kong, Kína 21. júní 2011 í Schaan,
samning milli sömu aðila um vinnumál sem gerður var samhliða fríverslunarsamningnum
og landbúnaðarsamning milli Íslands og Hong Kong, Kína sem einnig var undirritaður í
Schaan sama dag.