Samhliða framangreindu fjalli nefndin um og geri opinbert, á sundurliðaðan hátt, hvert
matsverð hinna sömu eigna var við flutning þeirra frá hinum föllnu bönkum, Landsbanka
Íslands hf., Glitni og Kaupþingi banka hf., yfir til nýju bankanna, NBI hf. (síðar
Landsbankans hf.), Íslandsbanka hf. og KBI hf. (síðar Arion banka hf.), og hverjir voru
ábyrgðaraðilar þess verðmats og hvaða forsendur lágu því til grundvallar.
Nefndin fjalli einnig um sölu einstakra félaga og eignarhluta í félögum af hendi slitastjórna og skilanefnda Landsbanka Íslands hf., Glitnis og Kaupþings banka hf. og NBI
hf. (nú Landsbankans hf.), Íslandsbanka hf. og KBI hf. (nú Arion banka hf.). Þannig skal
upplýst hvaða verðmætamat lá til grundvallar, hvernig staðið var að vali á kaupendum,
hvernig kaupin voru fjármögnuð af kaupendum og hvaða seljendaáhættur fylgdu sölunni.
2.
Á eftir orðinu „bankanna“ í 4. mgr. komi: og slita- og skilameðferð þeirra.
3.
Á eftir orðinu „bankanna“ í 5. mgr. komi: og slita- og skilameðferðar þeirra.