Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1413 — 814. mál.
Fyrirspurn
til efnahags- og viðskiptaráðherra um undirbúning stjórnvalda
vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu.
Frá Illuga Gunnarssyni.
1.
Hvaða undirbúningur hefur farið fram hjá stjórnvöldum vegna mögulegrar útgöngu
Grikklands úr evrusamstarfinu og þeirra afleiðinga sem hún gæti haft?
2.
Hvaða vinnuhópar hafa verið stofnaðir í þessum tilgangi, hvernig eru þeir skipaðir og
hver eru verkefni þeirra?
3.
Hefur málið verið tekið upp með formlegum hætti í ríkisstjórninni og ef svo er, þá
hvenær?
4.
Hvernig er samráði við Seðlabanka Íslands vegna þessa háttað?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Færð hafa verið fyrir því rök að með útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu kynni grundvöllur samstarfsins að bresta með skelfilegum afleiðingum fyrir hagkerfi ríkja Evrópu, a.m.k.
til skemmri tíma litið. Jafnvel þótt ekki kæmi til slíkra atburða má ljóst vera að útgangan
mundi veikja hina sameiginlegu mynt og valda mikilli spennu í hagkerfum ríkja á borð við
Spán og Ítalíu, sem og fleiri landa. Viðskiptakjör Íslendinga mundu án vafa versna mjög þar
sem um er að ræða helstu viðskiptalönd okkar. Nauðsynlegt er að fyrir liggi áætlun stjórnvalda um til hvaða aðgerða verði gripið í kjölfar alvarlegra atburða í efnahagslífi Evrópu.