Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 666. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1582  —  666. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (undanþágur, endurgreiðslur o.fl.).

Frá Lilju Mósesdóttur og Birki Jóni Jónssyni.


     1.      Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Við 2. mgr. 14. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Margnota bleiur og bleiufóður sem falla undir tollskrárnúmer 9619.0091.
     2.      Við bætist ný grein, svohljóðandi:
                      Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á 96. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005: Tollskrárnúmerið 9619.0090 skiptist upp og orðast svo:
                             
                        A     E
                        %     %
         –     Annars:
    9619.0091     –     –    Barnableiur og laust bleiufóður úr öðru en pappír eða vatti, margnota     15     0
    9619.0099     –     –     Annað     15     0

Greinargerð.


    Lagt er til að margnota bleiur verði færðar úr 25,5% virðisaukaskattsþrepi í 7% þrepið. Markmið tillögunnar er að draga úr notkun einnota bleia og um leið minnka mengun af völdum sorps.