Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 1619, 140. löggjafarþing 779. mál: innheimtulög (vörslusviptingar innheimtuaðila).
Lög nr. 78 29. júní 2012.
Lög um breytingu á innheimtulögum, nr. 95/2008, með síðari breytingum (vörslusviptingar innheimtuaðila).
1. gr. Við lokamálslið 2. mgr. 1. gr. laganna bætist: þ.m.t. vörslusviptingu.
2. gr. Á eftir 6. gr. laganna kemur ný grein, 6. gr. a, er orðast svo:
Innheimtuaðili skal, hvort sem er við frum- eða milliinnheimtu, afla skriflegs samþykkis skuldara áður en lausafé er tekið úr vörslum skuldara, enda sé skuldari í vanskilum með afborganir eða lánskostnað. Skal innheimtuaðili jafnframt láta skuldara í té afrit skriflegs samþykkis í síðasta lagi samtímis afhendingu lausafjármunar. Liggi slíkt samþykki ekki fyrir verður innheimtuaðili að leita aðfarar eftir reglum aðfararlaga, nr. 90/1989.
3. gr. Við 1. mgr. 18. gr. laganna bætist nýr stafliður, b-liður, svohljóðandi: 6. gr. a um vörslusviptingu.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 18. júní 2012.