Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1641  —  860. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um opnunarskilyrði ESB vegna samninga um landbúnaðarmál.

Frá Atla Gíslasyni og Jóni Bjarnasyni.

    1.     Hver er staðan í vinnu ráðuneytisins við að svara opnunarskilyrðum ESB vegna samninga um landbúnaðarmál?
    2.     Hvaða skuldbindingar felast í þeim fyrirheitum sem gefin eru um aðgerðir af hálfu íslenskra stjórnvalda í drögum að svari við fyrrnefndum opnunarskilyrðum sem hafa verið til kynningar á fundum samningahóps um landbúnað, kynnt sem „non-paper“, þar sem m.a. er gefið til kynna að vinna við breytingar á löggjöf muni hefjast áður en aðildarsamningur kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu?
    3.     Hvaða samskipti hafa farið fram við framkvæmdastjórn ESB vegna fyrrnefndra opnunarskilyrða?
    4.     Getur ESB krafist þess að tilteknum áföngum verði náð í aðlögun íslenskrar stjórnsýslu að löggjöf ESB áður en samningskaflanum um landbúnað verður lokað (e. closing benchmarks) á grundvelli þessarar skýrslu? Hver er skýringin á því?


Skriflegt svar óskast.