Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1644 — 716. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um nauðungarsölu, lögum um aðför, lögum um meðferð
einkamála, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl.
(auglýsing nauðungarsölu, mál til heimtu bóta, gjafsókn,
vörslusviptingar, úthlutun úr þrotabúi).
(Eftir 2. umræðu, 19. júní.)
I. KAFLI Breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir orðinu „dagblaði“ í 2. mgr. 26. gr. laganna kemur: á vef sýslumanna.
2. gr.
Á eftir orðinu „dagblaði“ í 1. málsl. 1. mgr. 64. gr. laganna kemur: á vef sýslumanna.
3. gr.
Í stað orðsins „þrír“ í 88. gr. laganna kemur: sex.
4. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (I.)
Fram til ársloka 2013 skal frestur til að höfða mál til heimtu bóta skv. 88. gr. vera tólf
mánuðir.
b. (II.)
Sýslumaður skal gæta þess af sjálfsdáðum að uppboðsandvirði verði ekki ráðstafað til
greiðslu kröfu ef hún er umdeild í ljósi hæstaréttardóma sem gengið hafa um lögmæti og
endurreikning gengistryggðra lána.
II. KAFLI Breyting á lögum um aðför, nr. 90/1989, með síðari breytingum.
5. gr.
Í stað orðsins „þrír“ í 98. gr. laganna kemur: sex.
6. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Fram til ársloka 2013 skal frestur til að höfða mál til heimtu bóta skv. 98. gr. vera tólf
mánuðir.
III. KAFLI Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum.
7. gr.
Í stað 1. mgr. 126. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Gjafsókn verður aðeins veitt ef málstaður umsækjanda gefur nægilegt tilefni til málshöfðunar eða málsvarnar og öðru hvoru eftirfarandi skilyrða er að auki fullnægt:
a.
að fjárhag umsækjanda sé þannig háttað að kostnaður af gæslu hagsmuna hans í máli
yrði honum fyrirsjáanlega ofviða, enda megi teljast eðlilegt að öðru leyti að gjafsókn sé
kostuð af almannafé,
b.
að úrlausn máls hafi verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu,
félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjanda.
Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um skilyrði gjafsóknar, þ.m.t. hvenær nægilegt
tilefni sé til veitingar gjafsóknar, þau atriði sem líta ber til við mat á fjárhagsstöðu umsækjanda og heimildir til takmörkunar á gjafsókn skv. 1. mgr. 127. gr.
8. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Án tillits til þeirra fresta sem greindir eru í 1. mgr. 137. gr. getur þrotamaður, þrátt fyrir
að útivist hafi verið af hans hálfu, krafist endurupptöku gjaldþrotaúrskurðar í máli þar sem
skiptum á búi hans er ekki lokið, enda leiði hann líkur að því að greiðsluerfiðleika hans sé
að rekja til gengistryggðra lána. Ákvæði þetta gildir til loka árs 2013. Ákvæði þetta á ekki
við um lögaðila.
IV. KAFLI Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum.
9. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. mgr. 22. gr. er fjármálafyrirtækjum og fjármálafyrirtækjum í slitameðferð
ekki heimilt að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu með vörslusviptingu ef krafan er
umdeild í ljósi hæstaréttardóma sem gengið hafa um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána. Dómari tekur afstöðu til þess hvort réttur fjármálafyrirtækis sé svo ótvíræður
að heimila megi vörslusviptingu.
Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæði þessu,
sbr. 110. gr.
Ákvæði þetta gildir til loka árs 2013.
V. KAFLI
Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991,
með síðari breytingum.
10. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Skiptastjóri skal, við úthlutun skv. XXII. kafla, gæta þess af sjálfsdáðum að söluvirði
eignar verði ekki ráðstafað til greiðslu kröfu ef hún er umdeild í ljósi hæstaréttardóma sem
gengið hafa um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána.
11. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrotamanni er heimilt að leita úrlausnar héraðsdómara um gildi sölu fasteignar samkvæmt
ákvörðun veðhafafundar til fullnustu kröfu sem er umdeild í ljósi hæstaréttardóma um
lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána, enda hafi kaupandi jafnframt verið eigandi
hinnar umdeildu kröfu og hann er eigandi uppboðsandlags. Að kröfu þrotamanns er sala til
fullnustu kröfu samkvæmt framansögðu ógild. Ákvæði þetta gildir til loka árs 2013.