Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF -
Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1645 — 763. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta,
nr. 98/1999, með síðari breytingum (innheimta iðgjalds).
(Eftir 2. umræðu, 19. júní.)
1. gr.
2. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun.
2. gr.
Í upphafi II. kafla laganna koma tvær nýjar greinar, 5. gr. a og 5. gr. b, ásamt fyrirsögnum,
svohljóðandi:
a. (5. gr. a.)
Starfsemi sjóðsins.
Sjóðurinn starfar í þremur sjálfstæðum deildum. Innstæðudeildirnar eru tvær, A-deild og
B-deild. Jafnframt starfar við sjóðinn verðbréfadeild. Deildirnar hafa aðskilinn fjárhag og
reikningshald og bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hver annarrar.
b. (5. gr. b.)
A-deild.
Innlánsstofnanir skulu greiða iðgjald til A-deildar sjóðsins frá því að þær hefja starfsemi.
Iðgjöld skulu vera samtala almenns iðgjalds skv. 3. mgr. og iðgjalds sem er reiknað á
grundvelli áhættustuðuls skv. 4. mgr. og renna í A-deild sjóðsins. Um ráðstöfun fjár úr deildinni skal fara samkvæmt lögum.
Almennt iðgjald skal nema sem svarar 0,225% á ári af öllum innstæðum, eins og þær eru
skilgreindar í lögum þessum, hjá viðkomandi innlánsstofnun öðrum en þeim sem eru undanþegnar tryggingavernd samkvæmt lögum þessum eða 0,05875% á ársfjórðungslegum gjalddaga.
Auk iðgjalds skv. 3. mgr. greiðir innlánsstofnun breytilegt iðgjald í samræmi við áhættustuðul sem Fjármálaeftirlitið gefur hverri innlánsstofnun. Áhættustuðull skal lægst hafa gildið
0 og hæst gildið 1 og skal iðgjald skv. 3. mgr. margfaldað með áhættustuðlinum eins og hann
er í lok þess ársfjórðungs sem iðgjald er greitt fyrir.
Gjalddagar almenns og áhættuvegins iðgjalds eru sem hér segir:
a.
Gjalddagi vegna 1. ársfjórðungs er 1. júní.
b.
Gjalddagi vegna 2. ársfjórðungs er 1. september.
c.
Gjalddagi vegna 3. ársfjórðungs er 1. desember.
d.
Gjalddagi vegna 4. ársfjórðungs er 1. mars næsta árs.
Iðgjöld eru óendurkræf. Þó getur stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta
ákveðið að endurgreiða iðgjöld sem hafa verið ofgreidd vegna mistaka við útreikning.
Eigi síðar en 30 dögum eftir lok hvers ársfjórðungs skulu innlánsstofnanir hafa veitt sjóðnum upplýsingar um samtölu þeirra eigna og atriða sem álagning skv. 3.–4. mgr. byggist á.
Skulu upplýsingarnar veittar í því formi sem sjóðurinn ákveður. Fjármálaeftirlitinu og
Seðlabanka Íslands er skylt að afhenda sjóðnum upplýsingar sem honum eru nauðsynlegar
til þess að sannreyna upplýsingar sem fjármálafyrirtæki hafa afhent samkvæmt grein þessari.
Sjóðurinn tilkynnir innlánsstofnunum upphæð iðgjalds a.m.k. sjö dögum fyrir gjalddaga.
Standi innlánsstofnun ekki skil á upplýsingum sem henni ber að veita skv. 7. mgr. er
sjóðnum heimilt að áætla iðgjald innlánsstofnunar skv. 3.–4. mgr. Slíkt iðgjald skal að lágmarki nema tvöfaldri síðustu álagningu ársfjórðungslegs iðgjalds viðkomandi innlánsstofnunar og er óheimilt að endurgreiða það þótt full skil verði gerð á öllum nauðsynlegum
upplýsingum síðar.
Iðgjöld skulu greidd í krónum og sama á við um greiðslur úr deildinni.
Greiði innlánsstofnun sem er skylt að greiða iðgjald til sjóðsins ekki ársfjórðungslegt
iðgjald á gjalddögum sem tilgreindir eru í 3.–5. mgr. leggst á iðgjaldið 5% álag fyrir hvern
liðinn dag umfram gjalddaga, í fimm daga. Hafi fyrirtæki ekki staðið skil á iðgjaldi og álagi
að þeim tíma liðnum tilkynnir stjórn sjóðsins um vanskil fyrirtækisins til Fjármálaeftirlitsins.
Þrátt fyrir ákvæði 10. mgr. er stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta heimilt
í undantekningartilfellum að veita frest til greiðslu iðgjalds ef sérstakar ástæður eru fyrir
hendi.
Verði vanskil á greiðslu iðgjalds innlánsstofnunar er stjórn sjóðsins heimilt að láta færa
fjármuni sem nema þeim innlánum sem orðið hafa til hjá hlutaðeigandi innlánsstofnun frá
gjalddaga á reikning hennar hjá Seðlabanka Íslands þar til iðgjald hefur verið greitt.
Sé innlánsstofnun svipt heimild til að taka við innlánum eða starfsleyfi í heild raskast ekki
hagsmunir þeirra sem njóta tryggingaverndar.
3. gr.
6. gr. laganna ásamt fyrirsögn orðast svo:
B-deild.
Eignir innstæðudeildar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta og skuldbindingar
eins og þær voru við gildistöku laga nr. 55/2011 og þær skuldbindingar sem á sjóðnum hvíldu
samkvæmt lögum nr. 98/1999 á sama tímamarki tilheyra sérstakri deild, B-deild.
4. gr.
Í stað orðsins „sjóðnum“ í 1. og 4. málsl. 1. mgr., 2. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. 8. gr. laganna kemur: verðbréfadeild sjóðsins.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
1.
Í stað orðsins „innstæðudeild“ í 2. og 4. málsl. 1. mgr. kemur: A- eða B-deild.
2.
3. mgr. orðast svo:
Með innstæðu er átt við inneign á reikningi í eigu viðskiptamanns hjá innlánsstofnun,
að meðtöldum áföllnum vöxtum og verðbótum, og millifærslu í hefðbundinni almennri
bankastarfsemi, sem innlánsstofnun ber að endurgreiða samkvæmt lögum og umsömdum
skilmálum, og hlutdeild viðskiptamanns í reikningi innlánsleiðar vörsluaðila lífeyrissparnaðar hjá innlánsstofnun. Lántökur innlánsstofnunar, eiginfjárreikningar, heildsöluinnlán og safnreikningar, aðrir en reikningar innlánsleiða vörsluaðila lífeyrissparnaðar,
teljast ekki til innstæðna.
3.
6. mgr. orðast svo:
Eftirfarandi innstæður eru undanskildar tryggingu skv. 1. mgr.:
1.
innstæður í eigu fjármálafyrirtækja,
2.
innstæður sem tengjast málum þar sem sakfellt hefur verið fyrir peningaþvætti,
3.
innstæður fyrirtækis þar sem fjármálafyrirtæki er meirihlutaeigandi,
4.
innstæður ríkis, sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja að meiri hluta í eigu opinberra aðila,
5.
innstæður rekstrarfélaga verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði,
6.
innstæður félaga í sömu samsteypu og þau sem falla undir 1. tölul.,
7.
innstæður sem eru ekki skráðar á nafn,
8.
innstæður lífeyrissjóða aðrar en hlutdeild viðskiptamanns í reikningi innlánsleiðar
vörsluaðila lífeyrissparnaðar hjá innlánsstofnun.
6. gr.
Í stað orðanna „innstæðudeildar og verðbréfadeildar“ í 11. gr. laganna kemur: deilda
sjóðsins.
7. gr.
Við lögin bætast þrjú ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a.
(III.)
Þær greiðslur sem voru inntar af hendi á árinu 2011 og verða inntar af hendi á árinu
2012 til sjálfstæðrar deildar sjóðsins á grundvelli ákvæða til bráðabirgða I og II, sbr. lög
nr. 15/2011 og nr. 55/2011, skulu renna til A-deildar sjóðsins.
b.
(IV.)
Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. b skal gjalddagi vegna 1. og 2. ársfjórðungs 2012 vera 1.
september 2012.
c.
(V.)
B-deild sjóðsins skal lögð niður þegar staðið hefur verið við skuldbindingar sem á
deildinni hvíla við gildistöku ákvæðis þessa. Þeir fjármunir sem þá eru í B-deildinni
skulu renna til A-deildar sjóðsins.