Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 666. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1646  —  666. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,
með síðari breytingum (undanþágur, endurgreiðslur o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 19. júní.)


1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „sem opinber aðili hefur einkaleyfi á, samkvæmt póstlögum, nr. 33/1986“ í 7. tölul. 3. mgr. kemur: sem íslenska ríkið hefur einkarétt á samkvæmt lögum um póstþjónustu, nr. 19/2002.
     b.      Í stað orðanna „fjárhagsleg áhætta“ í 5. mgr. kemur: fjárhagslegri áhættu.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „nr. 55/1987“ í 2. mgr. kemur: nr. 88/2005.
     b.      Í stað orðanna „109. gr. tollalaga, nr. 55/1987“ í 3. mgr. kemur: XV. kafla tollalaga, nr. 88/2005.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:
     a.      1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Vörur sem eru tollfrjálsar eða undanþegnar tolli skv. 4. og 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
     b.      Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Fella skal niður, lækka eða endurgreiða virðisaukaskatt í þeim tilvikum sem talin eru upp í 2.–12. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, að uppfylltum þeim skilyrðum sem þar eru tilgreind.
     c.      2. mgr. orðast svo:
                  Úrskurður tollstjóra um niðurfellingu, lækkun eða endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 1.–6. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. sætir kæru til ríkistollanefndar í samræmi við 118. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

4. gr.

    Í stað orðanna „nr. 55/1987“ í 2. mgr. 37. gr. laganna kemur: nr. 88/2005.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „við kaup“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: af innflutningi eða kaupum.
     b.      Í stað orðanna „b-lið 8. tölul. 1. mgr. 5. gr. tollalaga, nr. 55/1987, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 797/2000, um undanþágu aðflutningsgjalda í ýmsum tilvikum“ í 7. mgr. kemur: b-lið 8. tölul. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, sbr. 33. gr. reglugerðar nr. 630/2008, um ýmis tollfríðindi.
     c.      Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Endurgreiða skal sveitarfélögum og stofnunum eða félögum alfarið í þeirra eigu sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélags á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna virðisaukaskatt af innflutningi eða kaupum á eftirfarandi ökutækjum og tækjabúnaði:
              1.      Dælubifreiðum, tækjabifreiðum, vatnsflutningabifreiðum, björgunarbifreiðum, þ.e. mannflutningabifreiðum og stiga- og ranabifreiðum.
              2.      Slökkvidælum, reykblásurum, rafstöðvum, slöngum, börkum, tækjum og öðrum tilheyrandi búnaði.
              3.      Klippum, glennum, tjökkum, dælum og öðrum tilheyrandi sérhæfðum björgunarbúnaði sem er notaður við björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
              4.      Ytri hlífðarfatnaði vegna slökkvistarfa og mengunaróhappa sem og reykköfunartækjum og tækjabúnaði þeim tengdum.
              5.      Tækjabúnaði sem notaður er vegna mengunaróhappa og fjarskiptabúnaði fyrir slökkvilið svo sem boðtækjum, talstöðvum og farsímum.
                  Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt grein þessari er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.

6. gr.

    Við 43. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt grein þessari er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.

7. gr.

    48. gr. laganna orðast svo:
    Sala í tollfrjálsum verslunum, sbr. XIII. kafla tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, telst sala úr landi í skilningi laga þessara.

8. gr.

    2. mgr. 49. gr. laganna fellur brott.

9. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum fellur brott.

10. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Við innflutning og skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar er heimilt að fella niður virðisaukaskatt eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki eins og nánar er kveðið á um í ákvæði þessu. Ákvæði þetta skal jafnframt gilda um niðurfellingu virðisaukaskatts við innflutning og fyrstu sölu notaðrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar enda sé ökutækið þriggja ára eða yngra á innflutningsdegi og söludegi miðað við fyrstu skráningu.
    Tollstjóra er heimilt við tollafgreiðslu að fella niður virðisaukaskatt af rafmagns- eða vetnisbifreið að hámarki 1.530.000 kr. og af tengiltvinnbifreið að hámarki 1.020.000 kr.
    Við skattskylda sölu bifreiðar er skattaðila heimilt að undanþiggja frá skattskyldri veltu fjárhæð að hámarki 6.000.000 kr. vegna rafmagns- eða vetnisbifreiðar og að hámarki 4.000.000 kr. vegna tengiltvinnbifreiðar. Nýti skattaðili sér þessa heimild ber honum samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu að tilkynna ríkisskattstjóra á hverju uppgjörstímabili um að slík sala hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
    Skilyrði undanþágu samkvæmt ákvæði þessu eru eftirfarandi:
     1.      Ökutækið sé skilgreint í ökutækjaflokka L6e, L7e, M1, M1g og N1 samkvæmt reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja.
     2.      Við innflutning og skattskylda sölu tengiltvinnbifreiðar skal skráð losun slíkrar bifreiðar á koltvísýringi vera 50 g eða minna á hvern ekinn kílómetra.
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar.
    Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2013.

11. gr.

     Í stað dagsetningarinnar ,,31. desember 2012“ í ákvæði til bráðabirgða X í lögunum kemur: 31. desember 2013.

12. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Endurgreiða skal virðisaukaskatt skv. 1. efnismgr. c-liðar 5. gr. frá og með 1. janúar 2012.